ER VERIÐ AÐ BRJÓTA STJÓRNARSKRÁNA??????????????

Ég var á hinu sívinsæla "flakki" á fjarstýringunni við sjónvarpið fór á milli sjónvarpsstöðva í örvæntingarfullri leit að einhverju sem hægt væri að horfa á án þess að drepast úr leiðindum.  Þá datt ég niður á ÍNN og þar stóð yfir Hrafnaþing.  Ég staldraði við og einmitt þá fullyrti Þorsteinn Pálsson, að með því að leita á náðir stjórnarandstöðunnar með samstarf í Ices(L)ave-deilunni, hafi "ríkisstjórn fólksins" BROTIÐ stjórnarskrána, ekki lét hann þess getið í hverju þessi brot væru fólgin en hafi hann eitthvað til síns máls er þarna um grafalvarlegt mál að ræða og verður að skera úr um það strax.  Öllum er kunnug afstaða Þorsteins Pálssonar til ESB og varð honum tíðrætt um kosti ESB aðildar fyrir Ísland og spilaði EVRAN þar stærsta hlutverkið en hann "GLEYMDI" alveg að nefna það að GENGI evrunnar hefur verið að VEIKJAST undanfarið og uppi eru blikur um það að horfur séu á HRUNI hennar innan ekki svo langs tíma svo skrautfjöðrum ESB er heldur að fækka.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband