ÞETTA ER NÚ MEIRA LEIKRITIÐ SEM ER Í GANGI.................

Að setja svona lagaða vitleysu á "fjalirnar" er meira en fólk getur áttað sig á.  Ekki eingöngu er þetta rándýr uppfærsla heldur er hægt að leiða líkur að því að þessi farsi í boði "ríkisstjórnar fólksins" og stjórnarandstöðunnar sé BROT á stjórnarskrá landsins.  En þar segir (þetta er ekki orðrétt) "Stjórn landsins er í höndum kjörinnar ríkisstjórnar hverju sinni", það er ekki talað um það að ríkisstjórnin hafi heimild til þess að leita til annarra aðila í einstök verkefni.  En Bretar og Hollendingar eru búnir að reyna það að ekki er áreiðanlegt að "semja" við þessa ríkisstjórn og settu það því sem skilyrði að ríkisstjórnin fengi stjórnarandstöðuna til samstarfs við sig og án þess að athuga hvort heimild væri fyrir því samþykktu Heilög Jóhanna og Steingrímur Júdas og eru nú eins og löngum áður á kafi í því að svíkja land og þjóð og njóta við það aðstoðar stjórnarandstöðunnar.


mbl.is Funda mögulega á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband