HVAÐA BULL ER EIGINLEGA Í GANGI????????????????

Samningaviðræður um hvað og hvaða UMBOÐ hefur þessi samninganefnd????  Hefur þessi nefnd eitthvert sérstakt leyfi til brota á stjórnarskránni?
mbl.is Áforma ekki fleiri fundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta er ugluspegill aldarinnar Jóhann minn vissirðu það ekki

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.3.2010 kl. 20:17

2 Smámynd: Skeggi Skaftason

Er eitthvað betra að semja í næstu viku en þessari? Það verður að semja um þetta mál. Það skilur allt hugsandi fólk. Sem er kannski minnihluti landsmanna...

Skeggi Skaftason, 3.3.2010 kl. 22:41

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Eigum við að "skeggræða" dómstólaleiðina, ef við verðum dæmd til að borga þetta, Skeggi þá verður að semja um þetta annars ekki.  Ég veit nú ekki betur en að þó ég sé ekki sammála þér þá hefur þú ekki nokkurn rétt til að halda því fram að ég sé ekki hugsandi, getur þú rökstutt það á einhvern hátt?

Jóhann Elíasson, 3.3.2010 kl. 23:06

4 Smámynd: Skeggi Skaftason

skal gjört:

Þegar DO sagði hina fleygu setningu "Við eigum ekki að borga skuldir óreiðumanna" þá meinti hann "Við ráðum því hvaða skuldir óreiðumanna við borgum". Neyðarlögin kváðu á um að innistæður fóru fram fyrir aðrar skuldaviðurkenningar á bankanna, þannig var mesta beina tjóninu af hruni bankanna- nokkur þúsund milljörðum - að mestu komið á erlenda banka. Ef Íslendingar halda að þeir komist upp með þetta en vilji samtímis neita Icesave og fara þeð það fyrir dóm eru þeir vitlausir.

Í öðru lagi var samið um það 2008 að við myndum taka á okkur Icesave skuldaviðurkenningu þegar við sömdum við AGS, Norðurlönd og fleiri að hjálpa okkur. Þú mannst kannski að VIÐ báðum AGS og þessi lönd um hjálp. AGS er hér af því Ísland bað um það! Við erum þegar búin að taka við eitthvað af þessu fé. Að ætla sér núna að alfarið afneita Icesave eða vísa því í dóm heitir að ganga bka orða sinna. Þjóð sem gerir það er ómerkileg.

"Við-eigum-ekkert-að borga" kórinn vill að:

- Aðrar þjóðir eiga að sýna því skilning að við settum hér neyðarlög og færðum innistæður framfyrir skuldabréf í kröfuröð á þrotabú bankanna, og látum þannig erlenda banka taka mestan skellinn af falli bankanna.

- Aðrar þjóðir eiga að sýna því skilning að íslenskir innstæðueigendur fái sínar bankainnstæður 100% bættar, hvort sem er 10 milljónir, 100 milljónir, krónur eða gjaldeyrisreikningar.

- Aðrar þjóðir eiga að koma okkur til hjálpar og lána (AGS, Norðurlönd o.fl.) til að ríkissjóður fari ekki í greiðsluþrot og reyna megi að viðhalda íslensku krónunni (Nei-kórinn hefur fulla trú á krónuna enda vilja þeir ekki í ESB og taka upp Evru.

- Þegar kemur að Icesave, 300.000 manns sem treystu íslenskum banka fyrir peningunum sínum, eiga aðrar þjóðir barasta að gjöra svo vel að "fara með málið fyrir dóm".

Nei-urum finnst orðspor Íslands ekki nógu laskað. Þeim finnst það hafa verið frumhlaup Breta og Hollendinga að borga út Icesave innstæður. Þeir hugsa ekkert útí það hver áhrif þess hefði verið ef 300.000 manns sætu ENN og biðu eftir að fá kannski peningana sína aftur. Á meðan við fengum okkar innstæður 100% bættar.

Skeggi Skaftason, 3.3.2010 kl. 23:48

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Allt sem þú segir þarna ber gríðarlegan vott um pólitíska þröngsýni,  barnaskap og öfgamennsku, að mínum dómi og ég velti bara fyrir mér hvað sé eiginlega útí kaffinu sem þú drekkur, ekki getur það verið eingöngu mjólk???

Jóhann Elíasson, 4.3.2010 kl. 11:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband