ER ÞETTA AÐ VIRÐA ÓSKIR KJÓSENDA????????????

Ég hef alltaf haft ágætis tilfinningu fyrir Guðrúnu Ágústu og kynntist henni ágætlega og kunni vel við hana þegar ég vann með henni fyrir nokkrum árum.  Og þegar hún fór í framboð fyrir VG í bæjarmálapólitíkina voru fyrstu viðbrögð mín þau að þarna hefðu VG verið heppnir að njóta starfskrafta hennar, en svo bregðast krosstré sem önnur tré.  Nú berast þær fréttir að hún ætli að styðja LANDRÁÐAFYLKINGUNA í Hafnarfirði til áframhaldandi VALDA, þeim sömu og kjósendur voru að HAFNA í kosningunum á laugardaginn.  Sjálfsagt gerir landráðafylkingin kröfu um að fá bæjarstjórastólinn, sem svo Lúðvík Geirsson sem ekki náði kjöri, verður settur í.  Þetta er Guðmundur Rúnar Árnason að mestu búinn að staðfesta.  Hversu langt eru VG-liðar tilbúnir að ganga fyrir völdin??????
mbl.is Stefnir í vinstristjórn í Hafnarfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Félagar!

Byltingin mun hefjast í Hafnarfirði! Þar verður fyrstu skotunum hleypt af líkt og í Krónstadt fyrir utan Leníngrad forðum daga. Þessi atburður mun verða sá sem setur af stað byltinguna á Íslandi og víðar. Hin sögulega skoðun sýnir svo ekki verður um villst að Karl Marx og Stalín höfðu rétt fyrir sér þegar þeir sögðu fyrir um það sem koma skyldi.

Nú er tækifærið! Nú má enginn marxisti skorast undan!

Pétur Tyrfingsson (IP-tala skráð) 31.5.2010 kl. 17:19

2 identicon

Væri ekki bara sniðugt hjá henni að sækjast eftir bæjarstjórastólnum?  Hún hefur valið í hendi sér og myndi þá líklega velja þann flokk sem "gefur stólinn eftir".

Skúli (IP-tala skráð) 31.5.2010 kl. 22:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband