VERÐUR STAÐIÐ VIÐ ÞAÐ????????????????????

Heilög Jóhanna er nokkru sinnum búin að tala um það í gegnum tíðina að þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB aðild verði aðeins RÁÐGEFANDI fyrir stjórnvöld en EKKI BINDANDI.... Hvenær breyttist þetta????  Eru kannski einhver "SLÆM" tíðindi á leiðinni, sem þarf að leiða athyglina frá????
mbl.is Þjóðin hefur síðasta orðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rafn Gíslason

Af hverju skildi þjóðaratkvæðisgreiðslan um ESB ver einungis ráðgjafandi en ekki bindandi? Ég treysti ekki Samfylkingunni til að fara með þetta mál hlutlaust, verkin hræða.

Rafn Gíslason, 26.6.2010 kl. 13:54

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hún var nokkru sinnum búin að tala um þetta, ég leit þannig á að hún ÆTLAÐIað koma landinu inn í ESB hvort sem þjóðin vildi það eða ekki.  Ég er alveg á sama máli og þú Rafn, ég treysti Heilagri Jóhönnu og Co ekki fyrir horn og mér verður ekki almennilega rótt fyrr en þessi umsókn hefur verið DREGIN TIL BAKA.

Jóhann Elíasson, 26.6.2010 kl. 14:21

3 identicon

Samkvæmt lögum er svona atkvæðagreiðsla aðeins ráðgefandi en ekki bindandi. 

En Jóhanna er marg búin að lýsa því yfir að stjórnvöld munu hlýta úrskurði þjóðaratkvæðagreiðslu um inngöngu í ESB. Efast þú um að staðið verði við það? Svipuð lög gilda í Noregi. Þú veist hvernig þau mál fóru.

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 26.6.2010 kl. 15:07

4 identicon

Veit fólk  að samhliða aðildarviðræðunum þá krefst ESB þess að allar þær breytingar sem þurfa til að komast inn "fangelsi" ESB verði gerðar þannig að þegar viðræðunum er lokið þá eru breytingarnar afstaðnar og aðeins eftir að skrifa undir..... Heilaga Jóhanna ætlar að hafa þetta síðast tromp á hendinni. Þessi langavitleysa kostar sitt og þeim peningum er betur varið í endurreisn Íslands

Ég skil ekki af hverju allir eru svona sofandi fyrir Jóhönnu. Það er eins og enginn trúi því að hún sé svona innrætt? 

Anna Dóra Garðarsdóttir (IP-tala skráð) 26.6.2010 kl. 15:40

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Svavar, mér er fullkunnugt um hvernig mál fóru í Noregi en það sem Heilög Jóhanna hefur gert hér á landi frá því að hún tók við "stjórnartaumunum", er ekki til þess að auka traustið á henni. Ég hef EKKI heyrt hana lýsa því yfir að hún muni lúta úrskurði þjóðarinnar í þessu máli þvert á móti.

Jóhann Elíasson, 26.6.2010 kl. 17:34

6 identicon

Jóhann. Þú hefur rangt fyrir þér. Jóhanna hefur margsinnis sagt að þjóðaratkvæðagreiðsla muni skera úr um aðild að ESB.

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 26.6.2010 kl. 17:44

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Svavar, ef þú hefðir horft á Ísland í dag í kvöld, þá hefðir þú fengið það staðfest sem ég hef verið að segja, þannig að ég stend við það sem ég hef verið að segja en hvernig ætlar þú að snúa þig út úr þeirri lygaþvælu sem þú hefur farið með????

Jóhann Elíasson, 26.6.2010 kl. 20:01

8 identicon

Eitt er víst. Einhver á eftir að reyna að snúa sér út úr lygaþvælu. Sjáum til hver það verður!

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 26.6.2010 kl. 20:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband