HVALASKOÐUNARMENN FARA ÖRUGGLEGA AÐ HALDA ÞVÍ FRAM AÐ ÞÆR HAFI VERIÐ VEIDDAR Á "HVALASKOÐUNARSVÆÐI" OG VERÐA REIÐIR!!!!!

Og svo verða þeir með sitt árlega bull um það að ekki sé HÆGT að selja afurðirnar, enginn borði þetta og veiðarnar séu óhagkvæmar.  Ekki verður nú auðvelt að selja afurðirnar þegar hvalverndarsinnar stöðva flutning á afurðunum milli landa svo eina ráðið er og verður að "smygla" afurðunum milli landa svo friður verði fyrir þessu hryðjuverkafólki, sem kallar sig náttúruverndarsinna.  Ekki er annað að sjá en að markaðir fyrir kjötið séu stórir og mun stærri en framboðið og hafa Japanir t.d lýst því yfir að þeir séu reiðubúnir til að kaupa ALLT hvalkjöt, sem sé í boði frá Íslandi.  Þetta kjaftæði með það að veiðarnar séu ekki hagkvæmar, er nú varla svara vert, það stundar ENGINN heilvita maður atvinnurekstur nema hann skili hagnaði..................
mbl.is Búið að skjóta þrjár reyðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Þeir eru ótrúlega margir sem treysta Kristjáni Loftssyni ekki til að hafa vit fyrir sér!

Árni Gunnarsson, 29.6.2010 kl. 10:18

2 Smámynd: ThoR-E

Já þessar raddir sem segja að enginn markaður sé fyrir hvalkjöt og það sem selt var í fyrra sé allt í geymslu... að þær raddir eru háværar.

Efast stórlega um að staðið væri í þessum veiðum, borga starfsfólki, eldsneyti á skipin osfrv, ef enginn markaður væri fyrir vöruna.

ThoR-E, 29.6.2010 kl. 11:08

3 Smámynd: Haraldur Haraldsson

mikið sammála þessu Jóhann!!!!/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 29.6.2010 kl. 17:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband