ER VERIÐ AÐ BÚA TIL ANNAÐ "SÍS-VELDI"????????????

Með þessum gjörningi, að lífeyrissjóðirnir séu orðnir þátttakendur í fyrirtækjarekstri, er brotið blað í sögu þeirra og þeir eru komnir langt útfyrir það sem þeim er ætlað.  Þeim er ætlað að ávaxta lífeyri félaganna á ábyrgan hátt en eiga EKKI að stunda áhættufjárfestingar eins og hefur verið gert.  Til þess að komast "framhjá" þessu var Framtakssjóður Íslands stofnaður.  Það er verið að "henda" þeim peningum sem lífeyrissjóðirnir töpuðu EKKI í hruninu í "gæluverkefni" nokkurra manna en eftir situr hinn almenni lífeyrisþegi með tapið.
mbl.is Ósátt við fjárfestingar sjóðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Lítill fugl hvíslaði því að mér að Landsbaninn væri að rúlla, og það væri verið að velta skuldum yfir á lífeyrissjóði landsmanna.   Við skulum vona að svo sé ekki.  En ég er farin að trúa öllu, og ekki vakir þessi ríkisstjórn yfir okkur svo mikið er víst.  Steinsofandi úti á túni.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.8.2010 kl. 11:16

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það ER verið að velta ÖLLU yfir á almenning.  Eins og ég hef áður sagt þá verður ENGINN af útrásarvíkingunum látinn bera ábyrgð á neinu heldur almenningur og með þessari ráðstöfun er verrið að "láta" lífeyrissjóðina taka skellinn eða réttara sagt eins og þeir þola þar til lífeyrir landsmanna er uppurinn, þannig á að fullkomna þjófnaðinn.

Jóhann Elíasson, 31.8.2010 kl. 13:09

3 Smámynd: Jón Bragi Sigurðsson

Alveg sammála! Við ættum að rísa öll upp sem einn maður og krefjast þess að peningarnir okkar verði látnir í friði.

Jón Bragi Sigurðsson, 31.8.2010 kl. 16:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband