KOSTNAÐUR!!!???? FYRIR HVERJA!!!!?????

Þetta er nú með því aumasta sem ég hef nokkru sinni vitað og þó hefur nú margt skrautlegt á dagana drifið....  Nú kemur hver "spekingurinn" á fætur öðrum og SKELLA því fram að flatur niðurskurður upp á einhverja x prósentu kosti 220 milljarða.  Og þetta keppast allir fjölmiðlar við að birta og menn eru með hástemmdar  (spekingarnir) um að þetta sé algjörlega galið því það setji Íbúðalánasjóð á hausinn og jafnvel Lífeyrissjóðina líka.  Ég segi SKELLA, því svo furðulega vill til að þessir "spekingar" virðast ekki þurfa að leggja fram NEINA útreikninga máli sínu til stuðnings svo kokgleypa fjölmiðlarnir þetta alveg hrátt.  Það er búið að borga þessa svokölluðu "flötu niðurfærslu" marg oft í gegnum árin með því að verðtrygging hefur verið ofreiknuð og þar með hafa vaxtagreiðslur fólks og afborgun lána verið u.þ.b 30 - 60% of háar alveg frá því að verðtrygging var sett á.  Þetta hefur aldrei verið leiðrétt og bera ekki bankahallirnar þess vitni?????  Fyrst menn eru farnir að reikna svona lagað Hver yrði þá kostnaðurinn af fjöldagjaldþroti  og brottflutningi af landinu?????
mbl.is Flatur niðurskurður hjálpar ekki þeim verst stöddu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján H Theódórsson

Voru það ekki sumir af þessum miklu spekingum sem gáfu útrásar- og fjármálageiranum alveg sérstakt heilbrigðisvottorð  rétt fyrir hrun?  Minnir allvega að Friðrik Már hafi samið sérstaklega lærða skýrslu þess efnis í félagi við einhvern útlending og þegið vænar fúlgur fjár fyrir!

Á grundvelli slíkra heilbrigðisvottorða töldu margir sér óhætt að slá lán fyrir húsnæði og fleiru!

Kristján H Theódórsson, 14.10.2010 kl. 13:03

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég man nú ekki betur.

Jóhann Elíasson, 14.10.2010 kl. 14:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband