SKATTAHÆKKANIRNAR HJÁ GUNNARSSTAÐA-MÓRA SKILA SÉR VEL Í KASSANN...............

Eins og fram hefur komið þá hafa ALLIR sín þolmörk og þegar skattar og gjöld hækka umfram þessi þolmörk þá minkar bara neyslan og tekjur ríkisins með.  Mér skilst að það hafi orðið MIKIL aukning í "landasölu" og menn anni ekki eftirspurn......................
mbl.is Milljón lítrum minna af áfengi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já og ekki er landasalan að skila sér í ríkissjóð það er á hreinu. Einkennilegt að hækka allt upp fyrir öll mörk og halda svo að það skili sér í kassann.  Fólk hættir ekkert að drekka áfengi það skiptir bara um viðskiptaaðila til að nálgast Það.

Óskin (IP-tala skráð) 29.12.2010 kl. 15:57

2 Smámynd: Jóhann Hallgrímsson

ég held að hækkanir á sköttum á eldsneyti, tóbaki og áfengi hafi ekkert með auknar tekjur ríkisjóðs að gera, það er bara yfirskyn, þau vita vel að hækkanirnar minnka neislu og eftir allt er þetta flokkurinn sem veit allt betur en við hin, forsjárhyggja er meginástæða hækkunar skatta á afengi og tóbaki umhverfisvern er ástæðan þegar að endsneitk kemur.

Um leið og maður fattar að þetta er opunber stefna vg að minnka þessa neyslu og að það er sannað að þessar hækkanir skila engum auknum tekjum, jafnvel draga úr þeim það liggur þetta ljóst fyrir.

Jóhann Hallgrímsson, 29.12.2010 kl. 16:52

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jóhann Hallgrímsson, það voru rökin fyrir þessum hækkunum, á sínum tíma, að það vantaði AUKNAR tekjur í ríkiskassann.

Jóhann Elíasson, 29.12.2010 kl. 18:31

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Uss ekki segja þetta upphátt, næst verður löggan send inn á heimili fólks til að tékka á bruggun.

En ég var ekki gömul þegar ég hlustaði á viðtal við fjármálalráðherrann Magnús frá Mel, þar sem hann sagði nákvæmlega þetta: ef maður hækkar skattana of mikið, þá fer fólk að reyna að svíkja undan skatti.  ég man þetta enn þann dag í dag, þó langt sé liðið. M'er fannst þetta svo skynsamlegt. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.12.2010 kl. 20:14

5 Smámynd: Snorri Magnússon

Þetta er nákvæmlega það sem varað var við að myndi gerast og klárt að allir þeir sem eitthvað þekkja til löggæslu vissu að myndi gerast þ.e. að sala í vínbúðunum (ÁTVR) myndi minnka.  Á móti kemur aukin heimabruggun (landagerð) á áfengi, ólöglegur innflutningur (einmitt í fréttum í þessari viku eða síðust að tollgæslan hafi lagt hald á 117 lítra af áfengi) - hvað skyldi nú vera langt síðan slíkar fréttir hafa heyrst í fjölmiðlum? - o.s.frv.  Það er algerlega kristaltært að þeir sem á annað borð ætla sér að drekka áfengi munu drekka áfengi og þeir munu leita allra leiða til að fá að á sem hagstæðustu kjörum hverju sinni.  Gildir þá einu hvor um er að ræða ólöglega framleitt eða innflutt áfengi!

Endaniðurstaðan er þá eftirfarandi:

  1. tekjur ríkissjóðs standa í stað (gert var ráð fyrir verulega auknum tekjum);
  2. ólögleg framleiðsla á áfengi hefur aukist (aukin verkefni lögreglu með tilheyrandi aukakostnaði - yfirvinna, kostnaður vegna dómsmála, eyðingar á hinum ólöglega bruggaða varningi o.s.frv.),
  3. ólöglegur innflutningur á áfengi hefur aukist (engar tekjur í ríkissjóð af þessum innflutningi og aukin verkefni toll- og löggæslu - yfirvinna, kostnaður vegna dómsmála eyðingar á hinum ólöglega innflutta varningi o.s.frv.).

Ólögleg framleiðsla á áfengi (landi) getur haft mjög alvarlegar afleiðingar á heilsu þeirra sem mjöðinn drekka sem aftur birtist mögulega í auknum útgjöldum í heilbrigðiskerfinu!

Endanlega niðurstaða þessara frábæru hugmynda ríkisstjórnarinnar um öflun aukinna tekna með hækkuðu áfengisgjaldi munu því að öllum líkindum verða til stóraukinna útgjalda fyrir ríkissjóð!

Annars flott innlegg hjá þér Ásthildur!!!  Ég heyrði einmitt einhvern hagfræðing (man því miður ekki í svipinn hver það var) segja að ALLAR hagfræðikenningar og -kennslubækur ættu það sameiginlegt að það vitlausasta sem hægt væri að gera væri að reyna að skattleggja sig út úr kreppu!!!

Snorri Magnússon, 29.12.2010 kl. 20:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband