SUMIR LIFA Í HEIMI ÆVINTÝRA OG MÁ LÍKJA VIÐ "LÍSU Í UNDRALANDI"........

Kannski ætlar hún að greiða Magma skaðabætur sem þeim yrðu dæmdar ef kaupin verða dregin til baka????  Klúðrið með HS Orku er staðreynd, þetta er búið og gert en við getum komið í veg fyrir að svona lagað gerist aftur og ættum að fara að vinna að því.  En  Heilög Jóhanna og Gunnarsstaða-Móri ættu að beina kröftum sínum að einhverju öðru en að syngja vögguvísur á tröppum Stjórnarráðsins.  Það er alveg fullt af málefnum sem þarfnast lausnar hið allra fyrsta og þó fyrr hefði verið............
mbl.is Vilji til að láta sölu á HS Orku ganga til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þarna erum við pínulítið ósammála, því ég get ekki þolað að skúffufyrirtæki frá Kanada með skúffu í Svíþjóð hafi tekist að plata okkar fólk upp úr skónum og komist inn í orkugeira Íslendina með svikum og prettum.  Vona bara að við náum að koma því aftur í hendur þjóðarinnar.  Veit að þetta er klúður sjálfstæðisflokksins, samfylkingarinnar og vinstri grænna með dyggri aðstoð framsóknar.  Þau eru öll börn á leiksviði heimsins forystumenn þar, og ættu að vera löngu farin brott af vettvangi stjórnmála, þeim er alls ekki treystandi til að fara með fjöregg þjóðarinnar, á hvað sviði sem er. Þau eru upp til hópa snobbdýr sem snobba fyrir útlenskum millum og ráðamönnum og láta endalaust taka sig ósmurt í afturendann.  Svei þeim bara, eru sennilega athlægi í veröldinni fyrir aulagang. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.1.2011 kl. 16:40

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Við erum alveg sammála að það var með öllu óþolandi að við vorum "plötuð" þarna en það var lítið við því að gera.  Ég tel frekar litla möguleika á því að "mikið" sé hægt að gera í þessu en eins og ég sagði í færslunni þá getum við reynt að koma í veg fyrir svona klúður í framtíðinni.  Mér sýnist að þú hafir aðeins misskilið færsluna hjá mér af athugasemd þinni að dæma og myndi ég vilja biðja þig um að lesa færsluna aftur.

Jóhann Elíasson, 22.1.2011 kl. 17:42

3 Smámynd: Jón Ríkharðsson

Þetta er góður pistill hjá þér Jóhann.

Það er nefnilega þannig, að stundum gera menn slæma samninga og eftir á kemur upp grunur þess efnis, að annar aðilinn hafi verið hlunnfarinn að einhverju leiti.

En staðreyndin er sú, að þegar löglegur samningur hefur verið undirritaður, þá verður hann að standa. Og hafi hagsmuna okkar ekki verið gætt, þá er það á ábyrgð okkar lánlausu ríkisstjórnar því miður.

Það getur verið ansi snúið, með tilliti til ímyndar þjóðarinnar, sem ekki getur verið burðug um þessar mundir, að vilja fara að rifta honum.

Ríkið verður mögulega bótaskylt ef samningnum verður rift, þá er vandséð hvar við eigum að fá þessa tugi milljarða, hvort sem þeir eru þrjátíu og þrír eða ef talan er örlítið lægri.

Jón Ríkharðsson, 22.1.2011 kl. 18:04

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jóhann ég held að ég hafi lesið pistilinn alveg rétt.  Það sem ég er að segja er að þegar menn hafa verið plataðir og þegar auðsýnt er að í grundvelli hefur ekki verið makkað rétt, samanber Skúffufyrirtæki í Svíþjóð, þá er spurningin um að taka samningin upp aftur og nýta sér hugtakið eignarnám sem hluta af þjóðfélagslegri nauðsyn. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.1.2011 kl. 20:14

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þá er að gá hvað menn geta gert svo þeir verði ekki plataðir aftur og gera skaðann af platinu eins lítinn og hægt er.  Það hvernig hlutirnir voru framkvæmdir er ekki kannski aðalatriðið í þessu efni heldur hvernig verður brugðist við og ég sé ekki fyrir mér að þessi viðbrögð hjá söngkonunni eigi eftir að verða árangursrík.

Jóhann Elíasson, 22.1.2011 kl. 23:06

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Við skulum bara sjá til, stundum GERAST ævintýr.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.1.2011 kl. 09:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband