EKKI ER RÁÐ NEMA Í TÍMA SÉ TEKIÐ..............................................

En ég er hræddur um að þetta sé full snemmt, sé markmiðið að reyna að opna höfnina fyrir sumarið, nema það sé ætlunin að "HENDA" enn meiri fjármunum í sandinn?????????
mbl.is Ekkert dælt við Landeyjahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: GAZZI11

Hef sagt það og segi:

Upphaflega hugmyndin var byggð á sandi.

Þingsálygtunartillagan var byggð á sandi.

Samgöngu og Siglingamálastofnum tóku þetta til meðferðar og það var einnig byggt á sandi ( Þeim fannst þetta góð hugmynnd)

Rannsóknir voru byggðar á sandi og upplýsingar sem safnað var voru ekki réttar.

Alls ekki var hlustað á fólk með staðgóða reynslu bæði af sjó og landi.

Það er næsta víst að hrokinn og ruglið við þessa framkvæmd sjái til þess að þetta renni út í sandinn.

Þetta verður endalaus kostnaður og eins og staðan er í dag hefur þetta alls ekki bætt samgöngur né gert þær ódýrari fyrir ferðamenn og Eyjamenn.

GAZZI11, 16.2.2011 kl. 23:41

2 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Þetta er alveg fáránlegt sandfang og þeir sem stjórna þarna verða að fara sætta sig við það að höfnin verður ekki notuð hún er ónothæf!

Sigurður Haraldsson, 17.2.2011 kl. 08:04

3 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Jóhann, ekki er ég svo svartsýnn að halda að höfnin verði ekki klár fyrr en í sumar, vegna þess að ég veit svo margt um þetta mál vegna vinnu minnar hjá Vestmannaeyjahöfn. Ég get frætt ykkur um það t.d. var landeyjahöfn mæld fyrir 5 vikum síðan, af siglingamálastofnun Íslands, svo á mánudaginn eftir hádegi fór Lóðsinn upp í fjöru með fulltrúa siglingamálastofnun Íslands og skipstjórann á Skandia, og mældu þeir höfnina og svæðið þar fyrir utan, eins og er búið að gera frá því höfnin var opnuð, það sem kom út úr þessari mælingu núna var það að sandburður hefur verið sáralítill þarna fyrir utan og inn í höfninni á þessum 5 vikum.

Þannig að allt svartsýnistal um sand og sandburð, á ekki rök að styðjast.

Mig langar að benda ykkur Sigurður, Gazzi og Jóhann, að svartsýnismaður framkvæmir ekki!

Kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 17.2.2011 kl. 08:55

4 Smámynd: GAZZI11

Ég held að það hefði verið heillavænlegra að fá hraðskreiðari og stærri Herjólf og setja upp stórskipahöfn við Eiðið og halda áfram að sigla frá Þorlákshöfn.

Þá værum við að setja meiri kraft í uppbyggingu tveggja hafna í stað þriggja og með töluvert öruggari samgöngur og samgöngumáta sem mikil reynsla er komin á. Það er ekki hægt að segja það að þjónustan sé upp á marga fiska í dag við Bakkafjörusiglingar og svo er þetta orðið miklu dýrara, flutningar og ferðast til Eyja miðað við Þorlákshöfn.

Þá myndi einnig opnast fyrir stærri farþegaskip að hafa viðkomu í Eyjum í stað þessa að sigla framhjá.

Mér finnst þetta ekki vera neitt svartsýnisraus í okkur hér. Af hverju er þá höfnin ekki opin ef allt er í lagi og enginn eða lítill sandur þarna. Er það kannski ölduhæðin og S og SA áttir sem tefja fyrir Herjólfi að komast þarna inn. Ég held að menn séu að átta sig á því að þetta var svolítil fljótfærni að byggja þessa höfn og ég skil reyndar ekki hvers vegna það lá svona mikið á þessu. Nýr Herjólfur og stærri hefði bara dugað ágætlega næstu 20 árin ..  og hefði getað haldið inn þeim möguleika að skoða gangnagerð betur ..

GAZZI11, 17.2.2011 kl. 15:23

5 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Gazzi! ég get frætt þig á því að flestir Eyjamenn vildu ekki höfn þarna í fjörunna, það var bara auðvaldið sem vildi höfn í Bakkafjöru, Stórskipahöfn er á lokastigi hönnunar, og er meira að segja byrjað á henni í litlum mæli. En svo voru miklar skoðanaskipti yfir því hvort ætti að byggja nýtt skip, fyrir Þorlákshöfn, eða bora göng, það kom reyndar ekkert stórskipahöfn við, en svona var það nú.

Kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 19.2.2011 kl. 00:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband