Forsetinn skrifar nafn sitt með STÓRUM STÖFUM í söguna...........................

Það vakti strax athygli mína, þegar Forsetinn tilkynnti ákvörðun sína, hve fjölmiðlar fjölluðu neikvætt um hana og þá stóð upp úr sérstaklega neikvæð afstaða Jóhanns Haukssonar á DV.  En með ákvörðun sinni hefur forsetinn sýnt, svo ekki verður um villst, að hann er maður fólksins.  En maður fær bakþanka um hversu "hlutlausir" fjölmiðlarnir eru í þessu máli?????
mbl.is Forsetinn staðfestir ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Auðvitað er sjálfsagt að fonrsetinn fái einhverjar erfiðar spurningar en í þetta skipti upplifði maður þetta eins og það væri verið að leggja hann í einelti og refsa honum fyrir að taka ranga ákvörðun (að þeirra mati).

Var Samfylkingin búin að planta fulltrúum þarna?

Geir Jónsson (IP-tala skráð) 20.2.2011 kl. 17:04

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er spurningin sem maður veltir fyrir sér.  En ég er ekkert á móti því að forsetinn sé spurður á gagnrýninn hátt fyrr má nú rota en dauðrota  og það skein alveg í gegn hjá sumum fjölmiðlamönnum að þessi ákvörðun var ÞEIM ekki að skapi.

Jóhann Elíasson, 20.2.2011 kl. 17:23

3 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Sammála ykkur, jóhann og Geir, "ofurblaðamaðurinn" Jóhann G.Hauksson gat ekki dulið reiði sína, en Forsetinn var prúður og málefnalegur að vanda !

Kv.,KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 20.2.2011 kl. 17:26

4 Smámynd: Hörður B Hjartarson

    Jóhann var argasti dóni og bullaði tóma þvælu .

Hörður B Hjartarson, 20.2.2011 kl. 17:28

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

ég er bæði stolt af forsetanum og ánægð með málalyktir.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.2.2011 kl. 17:36

6 identicon

ég sé ekki hvernig við getum mögulega sloppið betur frá þessu. Það er og hefur aldrei verið um það deilt að fyrirfram bar okkur sennilega ekki skylda til að borga.

Það sem eftir stendur er svo það að um leið og við ábyrgðumst innistæður að fullu á Íslandi þá erum við nánast örugglega búin að skuldbinda okkur til að ábyrgjast í topp allar aðrar innistæður og að neyðarlögin gildi jafnt um íslenska bankareikninga á Íslandi sem og annarsstaðar sem fellur undir okkur (ekki 100% örugglega af því að ekki hefur reynt á þetta ákvæði í jafn stóru máli áður).

Við getum semsagt lent í því að borga upphæð sem gæti verið allt að 5-7x hærri upphæð en um var samið. Þetta ákvæði var sett inn í stofnsáttmála ESB til að varna bæði gegn rasisma og misrétti, og þetta er ein grundvallar regla Evrópusambandsins. Að mörgu leyti er ég sammála þessu ákvæði en það var ríkisstjórn D og Framsóknar sem ákvað að setja ekki nándar nærri (og í raun akkúrat í hina áttina farið) jafn strangar reglur og við gátum þegar frjálst fjármagnsflæði var leyft.

Spurningin er: þegar að því kemur sem eru um 70% líkur á að gerist, að við verðum dæmd (og biðjum til guðs að dómurinn gangi út frá Icesave samningunum og ekki þrengstu túlkun jafnréttisákvæðis ESB), mun þjóðin snúast gegn Davíð, Margréti Frímanns, Halldóri Ásgríms og Óla, eða munum við halda áfram að gráta yfir núverandi stjórn sem situr uppi með skítinn.

Vil svo taka fram að ég er eindreginn hægri maður en með mikil vonbrigði með allt það sem frá D hefur komið þangað til Bjarni Ben tók sig saman í andlitinu.

b (IP-tala skráð) 20.2.2011 kl. 19:01

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

"b",  markmiðið er ekki að sleppa frá þessu en ég verð að segja eins og er að þetta gæti komið 5-7 falt á okkur.  Hvaðan er sú tala komin og ég vildi gjarnan vita hver það er sem kemur svona málflutningi á "koppinn"?????

Jóhann Elíasson, 20.2.2011 kl. 22:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband