VERÐUR SENNILEGA LÍTIÐ UM FISK ÞARNA!!!!!!!!!!!!!!!!!

Fór að skoða aðstæðurnar við "vatnið" í gær og ég verð að segja að ekki leist mér nú of vel á.  Þar sem veiðin hefst nú yfirleitt á vorin (syðst í vatninu, best hefur verið að vera á svokallaðri Þorvaldseyri, sem er alveg syðst við vatnið).  Þessi eyri er alveg á þurru við vatnið og nokkuð ljóst að ekki verður veitt neitt af henni í vor.  Vatnsborðið hefur lækkað alveg gríðarlega mikið, þó ekki alveg jafn mikið og eftir skjálftann 17 júní árið 2000.  Og nú bætast þessar jarðhræringar við svo ekki lítur sumarið gæfulega út hvað varðar veiði í Kleifarvatni í sumar...............
mbl.is Líkur á fleiri skjálftum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Ágústsson

eftir farandi er tekid af heimasidu http://www.svh.is

tilvitnun hefst 

Á vorin er  besti veiðistaðurinn er syðst í vatninu (ekið til vinstri áður en komið er fyrir vatnið) þar sem heitt jarðvatn frá hverasvæðum sytrar út í vatnið, annars veiðist einnig ágætlega nyrst í vatninu þar sem tangi gengur útí vatnið og er þá kastað í átt að veginum til Krýsuvíkur, einnig er hægt að keyra lengra með vatninu að Hrossabrekkum og kasta í átt að áðurnefndum tanga. Meðfram þjóðveginum eru veiðistaðir við höfðana Syðri stapa og Stefánshöfða og eins við stakan klett stendur þar (Indíáninn). Einnig er hægt að aka alveg suðurfyrir vatnið og til vinstri og sem leið liggur framhjá bústöðum hestamanna, áfram yfir höfðan og alla leið í hraunið við austanvert vatnið, ekki fólksbílafært en litlum jeppum og stærri bílum.

tilvitun likur 

eg er sammala thessu med tangann nyrst hef oft gert goda veidi thar einnig hefur Stefanshofdi gefid mer goda veidi , badir thessir eru med frekar mikid dypi nalagt landi

eg held reyndar ad ef vatnid er lagt nuna tha er ekki gott ad fara i hraunid ad austanverdu

en hvernig er annars stadan tharna eru hverirnir komir uppur vatninu?

Magnús Ágústsson, 27.2.2011 kl. 14:33

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hverir eru nú ekki alveg komnir upp úr vatninu en maður verður alveg var við þá og sér gufu frá þeim.  Reyndar hef ég fengið fisk úti á Stefánshöfða, en aldrei orðið var við Indíánann (hann er að mestu á þurru í dag.   Það er gaman að segja frá því að stærsti fiskurinn, sem vitað er um að hafi veiðst í vatninu á stöng, er 14 punda urriði sem veiddist við Indíánann og held ég að sá fiskur sé til uppstoppaður í félagsheimili SVH.  Á hrauninu hef ég fengið ágætis veiði eingöngu urriða og það vænan 4-7 pund en á Þorvaldseyrinni hef ég eingöngu fengið bleikju tveggja-þriggja punda, þó hef ég séð tekna þar fimm punda bleikju og ég veit af sex punda bleikju sem hefur verið tekin þar.  Síðan í jarðskjálftanum 17 júní hefur vatnið ekki borið sitt barr veiðilega séð t.d þarna syðst í vatninu hefur varla verið nokkur veiði síðan.  Það er ljóst að fiskurinn hefur farið eitthvað en hvert það held ég að mjög fáir viti.

Jóhann Elíasson, 27.2.2011 kl. 15:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband