VG BYRJAÐ AÐ GROTNA NIÐUR........................

Þetta var fyrirsjáanlegt, fyrir hvern einn sem gengur í VG (Þráinn Bertelsson) ganga tveir út (Lilja Mósesdóttir og Atli Gíslason) svo geta menn deilt um hvort "kaupin" hafi verið hagstæð fyrir flokkinn???  En ætli þetta sé bara forsmekkurinn af því sem á eftir kemur?????????????


mbl.is Segja sig úr þingflokki VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Við bíðum bara eftir því hvað Ásmundur Daði og Guðfríður Lilja gera, og ef til vill Jón Bjarnason.  Ég er farin að hallast að því að Ögmundur sé bara froðusnakkur sem talar eins og fólk vill heyra, hélt að hann væri meiri persóna en það.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.3.2011 kl. 13:14

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég er alveg á sama máli og þú með Ögmund og búinn að vera lengi.  Já það verður gaman að sjá hvað þau gera sem eftir verða af "órólegu" deildinni.  Annars hef ég alltaf haft það svolítið á tilfinningunni að þessi "órólega" deild væri mest sýndarmennska.

Jóhann Elíasson, 21.3.2011 kl. 13:23

3 identicon

Bara að VG Grotni í frumeindir og tilheyri hryllings köflum í Islands-sögunni

Kristinn M (IP-tala skráð) 21.3.2011 kl. 15:09

4 identicon

Ég óttast að ef VG splundrast að þá muni aftur koma á stjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks.  Það vil ég ekki.  Við verðum að átta okkur á því að Samfylkingin og Vinstri Grænir eru að reyna að taka til eftir hina flokkana.  Jú, Samfylkingin að stóru leiti eftir sjálft sig.

En við erum í þeim sporum að það þarf að taka til.  Steingrímur J og meirihluti VG hefur áttað sig á því.

En ekki halda það samt að ég styðji meira en helming af því sem þessi ríkisstjórn gerir. 

Hún er samt sem áður betri en Sjálfstæðisflokkur og Framsókn. 

Við getum ómögulega óskað okkur aftur 2007 þegar við lifðum umfram efni fram.

Við þurfum raunsæi.

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 21.3.2011 kl. 18:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband