VAR NOKKURN TÍMA SPURNING UM ÞAÐ HVORT YRÐI KÆRT???????

Ekki er hægt að sjá það á fréttinni að neitt annað hafi staðið til en að kæra og af fréttinni að dæma þá hefur þetta athæfi staðið yfir í nokkurn tíma.  Ég eins og margir fleiri varð mjög sleginn yfir umfjöllun Kastljóssins á umfangi "læknadóps" ég vissi vel af þessu vandamáli (en greinilega aðeins um hluta ég á vin í þessum fjanda og hef orðið vitni að ansi mörgu) en að vandinn væri svona mikill og alvarlegur er nokkuð sem mig óraði ekki fyrir.  Því fannst mér dapurlegt viðtalið við Landlækni í Kastljósinu, í fyrrakvöld, fyrir það fyrsta gerði hann LÍTIÐ úr vandanum og í öðru lagi þá VARÐI hann þessa lækna, sem eru að skrifa út lyf í STÓRUM STÍL til manna SEM VITAÐ ER AÐ ERU AÐ SELJA ÞETTA Á GÖTUNNI.  Það er örugglega eitthvað til í því sem Lýður Árnason læknir, skrifaði að ekki sé ólíklegt að einhverjum læknum sé hreinlega þröngvað, af glæpahópum, til þess að ávísa þessum lyfjum.  En svoleiðis lagað verður að rannsaka og taka á með viðeigandi hætti en ekki að fara leið Landlæknis og stinga bara höfðinu í sandinn og vonast bara til að vandamálið hverfi.
mbl.is Lyfjaþjófnaður kærður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband