OG GERA ÞETTA AÐ LYFSEÐILSKYLT LÍKA...............

En það yrði bara til aðlögunar það eina sem eitthvað almennilega væri vit í er að setja þetta í flokk ÓLÖGLEGRA EITURLYFJA, SEM ÞAÐ ER...................
mbl.is Tóbak verði bara selt í apótekum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki gleyma áfenginu og svo skyndibitanum þar á eftir o.s.frv. Ég veit ekki hvar á að draga mörkin en svo lengi sem ég get andað hreinu lofti þá er ég sáttur. Hvað reykingarfólk gerir í sínum tíma kemur mér lítið við nema ég ætli að skipta mér að öllum hinum hlutunum líka.

Helgi Heiðar Steinarsson (IP-tala skráð) 30.5.2011 kl. 16:47

2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Það er einmitt hugmyndin að gera tóbakið lyfseðilsskylt sem verður vissulega vinnuskapandi en hugsanlega óvelkomin búbót fyrir þá fáu lækna sem eftir eru á heilsugæslustöðvunum.

En ætli það skræki ekki einhver þegar biðlistinn hjá heimilislækninum lengist úr hálfum mánuði í marga mánuði.

Kolbrún Hilmars, 30.5.2011 kl. 17:03

3 identicon

Svona virkar lýðræðið. Svo lengi sem fólk hefur sitt vímuefni þá er í lagi að banna önnur.

Því fleiri vímuefni sem eru bönnuð því betra fyrir (alþjóðlega) glæpastarfsemi.

Það á frekar að fara í öfuga átt og byrja að lögleiða fleiri efni.

En já eitt skref bíður upp á það næsta. Ef við samþykkjum þetta þá mun einn daginn koma að áfengi, sykri og koffíni.

Geiri Jónsson (IP-tala skráð) 30.5.2011 kl. 17:11

4 Smámynd: Sólbjörg

Breytist þá markaðsherferð innflytenda á tóbaki í að herja á lækna eins og lyfjafyrirtækin gera og á Útvarpi Sögu verða auglýsingar svona; "Læknirinn minn mælir með Winston en þinn læknir? Síðan verður það áfengið; Læknirinn minn mælir með Tequilla og sítrónu- en þinn læknir?

Kengruglaðar röksemdarfærslurnar fyrir þessu bulli, og hefur einhver leitað álits lækna hvort þeir vilji taka þátt í þessu?

Sólbjörg, 30.5.2011 kl. 18:33

5 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Þingmenn fjórflokksins vilja fá neytendur og neitendur í hár saman til þess að afvegaleiða umræðuna um önnur og mikilvægari málefni.

Kolbrún Hilmars, 30.5.2011 kl. 18:51

6 identicon

Það er nú sama hvað menn eru á móti tóbaki þá er það nú löglegt og hefur verið lengi og fyrst þetta er spurning um að þetta sé að sporna við fíkn fer þá að stittast í að matarfýklar þurfi að fá lyfseðil til að versla í matinn því jú ofþyngd er vandamál í Íslensku þjóðfélagi og skorar hátt í kostnaði í heilbrigðiskerfinu eins og svo oft er skotið að reykingarfólki.

Róbert (IP-tala skráð) 30.5.2011 kl. 22:25

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Róbert, það þarf nú að vera svolítið "stropaður" til að bera saman mat og tóbak, annað í þessari athugasemd þinni er á svipuðum nótum, SEM SAGT TÓM ÞVÆLA................

Jóhann Elíasson, 30.5.2011 kl. 22:53

8 identicon

Jóhann , ef þú kannast ekki við að offita sé heilsufarsvandamál þá búum við greinilega ekki í sama landi en setti þetta svona fram til að sína fáráðnleikan í þessari tilögu hver gefur þér og þínum líkum leyfi til til að vera að skifta ykkur af hvað fólk gerir á sínum heimilum í sínum bílum osfv en ef að þú og þínir skoðanabræður eru svo málefnalegir að eina svarið sem kemur frá þeim er að segja að annað fólk sé stropað þá skil ég úr hvaða drullupotti svona rugllög og ofstæki kemur og ef ég hef hitt á viðkvæma taug með því að minnast á offitu þá biðst ég afsökunar hef ekkert á móti feitu fólki og amast ekkert við því það er jú líka í mörgum tilfellum fíkn eins og reykingar vill taka það fram að ég reykji ekki sjálfur og mér kemur það ekki við þó að aðrie geri það ég er full fær um að koma mér burt frá tóbaksreyk ef hann angrar mig.

lifðu heill 

Róbert (IP-tala skráð) 30.5.2011 kl. 23:18

9 identicon

Kannski ekki mat almennt en margir vilja flokka t.d. hvítan sykur sem fíkniefni.

Hvítur sykur er í dag örugglega að valda meira álagi á heilbrigðiskerfið okkar en mörg fíkniefni. Ofþyngd er að skaða og drepa þúsundir Íslendinga og hjá mörgum þeirra er mikil sykurneysla helsta vandamálið.

Af hverju bönnum við ekki (viðbættan) sykur? Málið er bara að þrátt fyrir að hann sé skaðmikill þá metum við það sem svo að neyslufrelsi einstaklingsins vegi þyngra.

Fólk vill búa á Íslandi, frjálslyndu samfélagi... en ekki einhverskonar Íran norðursins þar sem ríkið er alltaf að skipta sér af lífsstílavali einstaklingsins.

Fullorðið fólk á að bera ábyrgð á eigin neyslu og heilsu, ekki ríkisvaldið.

Geir Jónsson (IP-tala skráð) 30.5.2011 kl. 23:55

10 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þessi athugasemd hjá þér var á nákvæmlega sömu nótum og sú fyrri, Róbert og staðfestir bara að þú gengur ekki alveg heill til skógar.  Gleymdu bara ekki að taka lyfin þín.................

Jóhann Elíasson, 30.5.2011 kl. 23:59

11 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Já þetta er athyglisvert í ljósi þess að það biluðu bjöllurnar á Alþingi á sínum tíma (reyndar ekki svo langt síðan) þær stífluðust vegna nef og munn-tóbaksnotkun manna og kostaði víst mikið að láta hreinsa þær...

Þetta fær mann til að hugsa hvort það þyrfti ekki frekar að hreinsa annarstaðar fyrst eins og til dæmis Alþingi....

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 31.5.2011 kl. 00:41

12 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Alþingi er skíta stofnun sem er löngu orðið ekki neitt í augum almennings og þetta er kornið sem fyllti mælinn því að nú er komið út fyrir fjórflokkin með aðkomu Þórs Saari og Margrétar Tryggva!

Sigurður Haraldsson, 31.5.2011 kl. 07:59

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Látið nú ekki svona húsið við Austurvöll er að keppa við Hörpuna um vinsældir, heyrðuð þið ekki konsertin í gær, ég held að hann hafi heitirð Bjöllublues

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.5.2011 kl. 09:36

14 identicon

Tyggjó er selt í búðum en ef menn vilja nikotíntyggjó þurfa þeir að fara í apótek til að kaupa það. Því ekki að hafa þetta eins með tóbakið, selja það í apótekum?

Það er óþarfi hjá pistlahöfundi að fara á hjörunum þó svo að fólk sé ekki sammála honum í einu og öllu. Svo virðist sem hann þurfi að temja sér það að telja upp á 20 áður en hann svarar fólki, því oftar en ekki svarar  hann með skætingi og dónaskap.     Maður skyldi ætla að maðurinn væri orðin það þroskaður.

Góðar stundir 

thin (IP-tala skráð) 31.5.2011 kl. 09:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband