VILJI ÞJÓÐARINNAR ER Á HREINU...............................................

Það er aðeins spurningin um hversu STÓRþessi meirihluti verður.  Þau 10,5% sem ekki taka afstöðu það er spurningin hvað þetta fólk gerir þegar það er komið í kjörklefann???????  Meirihluti þjóðarinnar er orðinn þreyttur á Evrópuþráhyggju Heilagrar Jóhönnu og Össurar og líka hvernig Gunnarsstaða-Móri lætur þau draga sig á "asnaeyrunum" ásamt mest öllu þingliði VG (WC) bara fyrir ráðherrastólana.  Þeim virðist ekki skipta nokkru máli þó þjóðin þurfi að greiða millajarða fyrir þessa "þráhyggju" svo lengi sem þau geta haldið í ráðherrastólana.
mbl.is Meirihluti vill draga ESB-umsóknina til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Gíslason

Þau eru búin að vera svo lengi á þingi að þau eru orðin föst við veggina!

Ómar Gíslason, 30.6.2011 kl. 11:33

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta er ánægjulegt að heyra.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.6.2011 kl. 12:01

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ég vil sjá þetta fara upp í 70% og ég trúi því að svo verði áður en langt líður.

Árni Gunnarsson, 30.6.2011 kl. 14:55

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Árni 70-95%, þegar þetta er komið í 95% þá sér fólk að Þráinn Bertelsson er kannski ekki eins vitlaus og hann lítur út fyrir þegar hann sagði að 5% þjóðarinnar væri fífl........

Jóhann Elíasson, 30.6.2011 kl. 15:02

5 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

þetta er gert fyrir heimssýn... það er ekkert að marka þessa könnun.

Sleggjan og Hvellurinn, 30.6.2011 kl. 22:15

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Núnaer ekkert að marka kannanir sem Capacent Gallup gerir?????    

Jóhann Elíasson, 30.6.2011 kl. 23:16

7 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Ég get spurt þið hvað kemur til að núna er allt að marka capacent.

Sleggjan og Hvellurinn, 1.7.2011 kl. 00:04

8 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það að þessi niðurstaða komi frá Capacent er einmitt það sem er merkilegt við hana.

Guðmundur Ásgeirsson, 1.7.2011 kl. 02:10

9 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það hefur ekkert breyst, að ég er á því að skoðanakannanir séu enginn stórisannleikur, þær eru  og verða ekkert annað en "hugsanlegur" vegvísir.   Þær geta gefið vísbendingu um afstöðu til einhverra mála en eru síður en svo eitthvað til að fara eftir í einu og öllu.  Prófessor einn sem ég var hjá sagði að EKKERTværi að marka skoðanakannanir því fólk svaraði bara einhverju til að hespa málinu af.  Mér fannst þetta nokkuð gróft hjá honum en eftir því sem ég hugsa málið betur er ég á því að hann hafi bara nokkuð mikið til síns máls þó kannski hafi hann tekið full djúpt í árinni með þessum orðum sínum.  En til að fyrirbyggja allan misskilning, þá hef ég aldrei sagt að mikið sé að marka Capacent, en eins og Guðmundur segir, vegna þess að þetta kemur frá Capacent (sem hefur helst ekki sent neitt frá sér sem er "neikvætt" fyrir innlimunarsinna og umsóknina í ESB), vekur þetta vissulega athygli..........

Jóhann Elíasson, 1.7.2011 kl. 06:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband