HVERT VAR SVO HLUTVERK "RÍKISSTJÓRNAR FÓLKSINS"??????????

Ég gat ekki betur séð, við lestur skýrslu AGS, en að það hafi verið helsta hlutverk Fjármálaráðherra að hlaupa til og framfylgja því sem AGS sagði honum að gera og það hafi hann gert, hann hafi verið eins og hinir hundarnir hann gelti þegar honum var sigað.  Ekki er hægt að segja að maður hafi orðið neitt rólegri við lesturinn, hörmungunum virðist ekkert vera að linna, það á að hækka skatta og bæta við nýjum, áfram á draga saman í þjónustu hins opinbera, ekki eru fyrirhugaðar nýframkvæmdir.  Og ef allt þetta bregst þá á bara að bæta við NÝJUM sköttum.  Svo geta jú INNLIMUNARSINNARörugglega leitað til ESB eftir hjálp það er að segja ef Landráðafylkingin og VG (WC) verða enn við völd.
mbl.is Nýjar tekjur skila 29 milljörðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Það sem vantar er að virkja okkar auðlindir til að koma hagvexti í gang svo við getum rekið mannsæmandi heilbrigðiskerfi.

Sleggjan og Hvellurinn, 31.8.2011 kl. 19:09

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ríkisstjórnin okkar er í andsslitrunum og getur ekki lofað einu né neinu sem betur fer.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.8.2011 kl. 19:33

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég get ekki séð að til standi að virkja auðlindirnar eða gera nokkurn skapaðan hlut af viti............

Jóhann Elíasson, 31.8.2011 kl. 19:48

4 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

VG er að halda atvinnulífinu í gíslingu. Það er bara þannig.

Svandís Svavars lætur ekki einusinni lög og reglur stoppa sig í baráttunni fyrir aukið atvinnuleysi. Enda var hún dæmd í hæstarétti nýlega.

Sleggjan og Hvellurinn, 31.8.2011 kl. 21:44

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég gæti ekki verið meira sammála...................

Jóhann Elíasson, 31.8.2011 kl. 21:46

6 Smámynd: Magnús Ágústsson

Því miður hefur þessi stjórn aldrei verið ríkisstjórn fóksins heldur hagmunagæslu aðilar AGS og erlendra vogunarsjóða

Magnús Ágústsson, 1.9.2011 kl. 03:42

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það að ég nefni "Ríkisstjórn Fólksins" er af því að ég er að gera létt grín að orðum sem Heilög Jóhanna lét falla eftir ríkisstjórnarmyndunina en hún sagði:  "NÚ HEFUR VERIÐ STOFNUÐ RÍKISSTJÓRN FÓLKSINS OG MUN HÚN GÆTA HAGSMUNA ALMENNINGS OG HEIMILANNA Í LANDINU".  Þarna er um að ræða MESTU ÖFUGMÆLI sem hafa verið látin falla í Íslenskri stjórnmálasögu...............................

Jóhann Elíasson, 1.9.2011 kl. 06:22

8 Smámynd: Magnús Ágústsson

Sammála síðasta ræðumanni

Magnús Ágústsson, 1.9.2011 kl. 07:54

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það var ekkert minna en það!

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.9.2011 kl. 08:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband