ERUM VIÐ AÐ HORFA FRAM Á HRUN EFNAHGSKERFIS HEIMSINS???????

Það virðist nokkuð margt benda til þess að ekkert lát sé á vandræðum bankanna í heiminum.  Það er ekki bara í Evrópu, sem eru vandræði með bankana þó að vissulega beri þau hæst í fréttum hérna nú um stundir, heldur er búin að vera mikil niðursveifla hjá bönkunum í Bandaríkjunum í mörg ár (eða síðan fyrir hrun).  Kanada hefur sloppið þokkalega en það sem kemur mest á óvart er að bankar í Asíu hafa þurft að afskrifa alveg gífurlegar fjárhæðir, vegna bankahrunsins á vesturlöndum og eitthvað eru þeir að gefa eftir.  Það sem hefur haldið þeim á floti (ef svo má að orði komast) er mikill hagvöxtur á svæðinu en það veit enginn hvað sá hagvöxtur varir lengi eða hversu mikið hagkerfi getur stækkað.  Ekki vil ég ganga svo langt að spá fyrir um allsherjar efnahagshrun á morgun eða hinn en ég get ekki betur séð en að ýmis teikn séu á lofti, sem styðja við þetta.......
mbl.is Segir banka þurfa að auka hagnað sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þú tekur svo varfærnislega til orða... ;)

Guðmundur Ásgeirsson, 19.9.2011 kl. 08:35

2 identicon

Hlustaði á umræður í þýska sjónvarpinu í morgun.  Þar sagði svissneskur hagfræðingur að vandamálið væri að ekkert raunverulegt markimið eða stefna virðist vera í gangi.  Ákvarðanir eru teknar án þess að vitað sé í hvaða átt verið sé að stefna og hvert langtíma markmið þeirra sé.

Hún reiknar með að um 50% af ríkisskuldum Grikkja þurfi að vera afskrifað.

"Verðbréfasali" nokkur sagði að með því að afskrifa ekki strax væri verið að fremja lögbrot, samkvæmt þýskum lögum.  Það er að þú mátt ekki reka fyrirtæki áfram ef þú átt ekki fyrir gjöldum eða skuldum,  þ.e. ekkert eigið fé til.  En þetta eru aðeins þýsk lög sem gilda innanlands.

Pólitíkin var betri.  Hún sagði að þetta myndi hafa svo alvarleg áhrif í Evrópu og í heiminum.  

Það lítur út fyrir að pólitíkin standi í vegi fyrir að eitthvað verður gert.  Á meðan að hún er stefnulaus, þá heldur þetta áfram.

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 19.9.2011 kl. 09:16

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég þori ekki annað en að taka varfærnislega til orða því menn eru til í að kasta yfir mig hvaða "drullu" sem er til að verja það peningakerfi sem er í gangi.  En mér finnst allt benda til þess að efnahagskerfi heimsins sé á síðustu metrunum................

Jóhann Elíasson, 19.9.2011 kl. 09:59

4 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Hvað gerir þjóð ef það stefnir í aðra kreppu. Lokum landinu. Fyllum alla olíugeyma þá ég við öll ílát sem við höfum og búum okkur undir langvarandi kreppu. Setjum áherslu á methen gas framleiðslu. Við höfum alla burði að lifa að afurðum okkar og þurfum ekkert að kvarta. Við leggjum togaraflotanum en handfæra bátarnir geta séð um að afla til matar. Bændur okkar skaffa kjöt og kartöflur. Jarðvarma bændur annað grænmeti.  Ég segi hvort sem það verður svona kreppa eða ekki skiptir ekki máli en sú hugsun ætti að vera hvatning fyrir okkur að standa og falla með okkur sjálfum. 

Valdimar Samúelsson, 19.9.2011 kl. 10:58

5 identicon

Já við stefnum í þrott held ég allur heimurinn. Ástæðan er ekki bara sukk. það er önnur og verri ásæða að baki. Árið 1790 er talið að það hafi verið rúmur miljarður manna á jörðini. þá hafði mannfjöldi vaxið úr þetta 150 miljónum á svona þúsund árum. Vita menn hvað við erum mörg í dag? um sjö miljarðar! Sem væri ekkert mál ef jörðin hefði stækkað,olían aukist búfjenaði fjölgað akrar stækkað og svona má halda áfram lengi lengi. Niðurstaða. Við erum fokkt!

óli (IP-tala skráð) 20.9.2011 kl. 02:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband