ÓÁNÆGÐUM ÚR EIGIN RÖÐUM FJÖLGAR DAG FRÁ DEGI............................

Nú er flokksbundið fólk farið að láta óánægju sína í ljós.  En Gunnarsstaða Móri lætur það ekki trufla sig neitt og vill leiða þjóðina til slátrunar óáreittur...................
mbl.is Ekkert eftir af væntingum fólks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Það truflar enginn böðulinn,fyrr en hann verður settur af.

Helga Kristjánsdóttir, 17.1.2012 kl. 14:42

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já ég held að þarna sé verið að segja sannleikann ómengaðan. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.1.2012 kl. 14:43

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Að venju mun koma skólpgusan þar sem talað er um "að auðvitað sé alltaf verið að taka óvinsælar ákvarðanir en þegar fólk fer að átta sig og skoða allan þann mikla árangur sem þrátt fyrir allt hafi nú náðst þá trúi ég því að flokkurinn þjappi sér saman á ný."

Svona talaði Halldór Ásgrímsson ævinlega þegar hann var að svíkja framsóknarmenn og kljúfa flokkinn.

Og svo er nú eftir að semja nýtt kvótafrumvarp. Þá mun koma gamli frasinn að sætta ólík sjónarmið og ná þeirri lendingu sem flestir geti nú eftir atvikum sætt sig við þegar fram í sækir.

Halldór smeygði sér alltaf framhjá allri veigamikilli umræðu um kvótakerfið með því að segja að: "auðvitað þurfum við að ná sátt um stjórn fiskveiða."

Steingrímur er Sjálfstæðisflokknum mikilvægari í dag en bæði formaður hans og varaformaður til samans.

Árni Gunnarsson, 17.1.2012 kl. 14:52

4 Smámynd: Sandy

Það fer að halla að kosningum. Ég ætla rétt að vona að ríkisstjórnarflokkunum verði harðlega refsað í næstu kosningum fyrir að hafa skilið fólkið í landinu eftir, þegar var verið að redda bönkunum og fjármálafyrirtækjunum. Og ekki einu sinni er hægt í þessu guðsvolaða þjóðfélagi að greiða mannsæmandi laun, því ávallt hefur það verið svo að þegar vinstri stjórn er við völd þá sofnar verkalýðshreyfingin.

Sandy, 18.1.2012 kl. 08:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband