"CRY BABY CRY" - EN YFIR HVERJUER VERIÐ AÐ GRÁTA?????????

Þó svo að útgerðarmenn "gráti" (krókódílatárum) opinberlega þá hljóta þeir að hoppa af kæti og hlæja innra með sér.  Ekki trúi ég því að þeir gráti mikið í koddann.  Það liggur við að þeim sé TRYGGÐUR ÆVILANGUR AÐGANGUR að fiskveiðiauðlind þjóðarinnar og þar af eiga þeir að greiða smánarlega upphæð í "auðlindagjald".  Það læðist nú að manni sá grunur að Jón Bjarnason hafi ætlað að leggja fram það róttækt frumvarp að LÍÚ-klíkan hefði ALDREI getað samþykkt það og því hafi hann verið látinn fara og meðfram vinnu Jóns hafi Gunnarsstaða Móri verið að vinna þessa HÖRMUNG, í það minnsta leið grunsamlega "stuttur" tími frá því að Jóni var bolað í burtu þar til ÞESSI ÓSKÖP LITU DAGSINS LJÓS.
mbl.is „Útgerðin þjóðnýtt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Úr því útgerðarmenn kalla þessi nýju kvótalög þjóðnýtingu verður svo að vera. Annan betri samning fá þeir tæpast, en auðvita vilja þeir halda í óbreytt ástand, sem er búinn er að vera í gildi alltof lengi. Að þjóðnýta eitthvað sem þjóðin á sannarlega, er fráleitur málflutningur og ekki þeim til sóma.

Aðalbjörn Steingrímsson (IP-tala skráð) 27.3.2012 kl. 08:33

2 identicon

Ég held að þú ættir að taka þetta út hjá þér fyrrverandi stýrimaður, þú tekur niður fyrir stéttina að bulla undir þessu fyrrverandi stýrimaður.

Ein spurning, Heldur þú virkilega að hagnaður á því að skattpína útgerðina fari í vegaframkvæmdir eins og Árni Páll sagði í morgunn? frekar en bensínskatturinn!!!!!

Nei þvílíka bullið að það nær ekki nokkri átt.

óskar (IP-tala skráð) 27.3.2012 kl. 09:16

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Jón Bjarnason hefði aldrei lagt eitt eða neitt fram. Hann hefur alla tíð þurft hjálp til að setja annan fótinn fram fyrir hinn. Hinar mestu mannleystu eru þessa dagana hafnar upp til skýjanna fyrir það eitt að þvælast fyrir ríkisstjórninni, þó það sé af hreinni heimsku gert.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 27.3.2012 kl. 10:02

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Óskar, ert þú svo vel að þér í þessum málum, hver hefur nokkurn tíma hlustað á Árna Pál og því ætti að fara að byrja á því núna og hvaðan er það komið að útgerðin verði skattpínd????  Eftir að hafa skoðað þessa þvælu þá er ég á því að Gunnarsstaða Móri hefði alveg eins getað rölt með GJAFABRÉF niður á LÍÚ.

Jóhann Elíasson, 27.3.2012 kl. 11:18

5 Smámynd: Sigur!

Að fá að reka fyrirtæki sem ekki getur skilað hagnaði, frábær gjöf það.

Sigur!, 27.3.2012 kl. 15:34

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Enn eru þessi mál á villigötum. Af hverju getum við ekki fengið stjórnmálamenn sem skilja og þekkja sjávarútveginn og þarfir hans.  Ísland deyr ekki þó þessir þjóðnýðingar þurfi að hætta að rasskatast með fiskinn í sjónum, ef til vill bíða þarna úti fólk sem getur gert betur.  Það skyldi þó aldrei  vera vandamálið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.3.2012 kl. 01:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband