NÚ ORÐIÐ SEGJA INNLIMUNARSINNAR AÐ ÞAÐ SÉ EKKERT AÐ MARKA SKOÐANAKANNANIR....

Eða alveg frá því að meirihluti var orðinn á móti INNLIMUN.  Svo gengur sumum þeirra illa að sætta sig við það að landsmenn eru orðnir meira meðvitaðir um ESB og sjá lítið vit í þessu miðstýringar - og spillingarapparati
mbl.is Mikill meirihluti stjórnenda á móti ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er eins og mig minni að einangrunarsinnar hafi sagt nákvæmlega það sama þegar staðan var öndverð. Eigum við ekki bara að bíða rólegir, sjá hvað kemur út úr aðildarviðræðunum og greiða svo atkvæði um aðildina. Óttast andstæðingar aðildar það í raun að hún verði samþykkt?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 10.5.2012 kl. 00:47

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Menn eru alveg með á hreinu að INNLIMUN yrði FELLD með miklum meirihluta.  Þar af leiðandi er ekki nokkur ástæða til að vera að eyða fjármunum og tíma í að halda áfram með þessa vitleysu.  Mér hefur sýnst, á þessum niðurskurðartímum, að það sé nóg við peningana annað að gera..........

Jóhann Elíasson, 10.5.2012 kl. 07:16

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Við óttumst ekki að aðild verði samþykkt, en við alla vega ég óttast að það verði ekki farið eftir niðurstöðu kosninga.  Samfylkingin er harðákveðin í að þröngva íslendingum þarna inn og það skal gert með góðu eða illu.  Það er það sem ber að óttast. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.5.2012 kl. 09:49

4 identicon

Þarna er kannski komin skýringin á því hvers vegna Steingrímur J vill ganga milli bols og höfuðs á sjávarútvegsfyrirtækja, stjórnendur 80% fyrirtækja í sjávarútvegi er á móti aðild, Svona skulu þeir brotnir á bak aftur. 

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 10.5.2012 kl. 10:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband