ÞAÐ VIRÐIST BARA ALLS EKKI HAFA VERIÐ ÆTLUNIN AÐ ÞETTA YRÐI REKSTRARHÆFT.....

Ef menn skoða bara hvers lags hús þetta er þá hefur bara staðið til að reisa "listaverk" við höfnina.  Þarna inni er alveg gríðarlega mikið af opnum rýmum, stigum og göngum .  Ég efast um að það sé nokkur rekstur í meira en 40% af húsinu (gott ef það nær 40%).  Datt einhverjum í hug að svoleiðis hús gæti staðið undir sér?  Mér fannst nú að Orkuveituhúsið væri það alversta í nýtingunni og það yrði ekki "toppað".  En  mér skjátlaðist þar, því það er mjög vel nýtt plássið þar miðað við þetta.
mbl.is Hrakspár vegna Hörpu að rætast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Sumir, einkum þó andlausi og heimski partur Sjálfstæðismanna ( og hann var ansi stór síðast þegar ég tékkaði ) má ekki heyra minnst á menningu eða listir án þess að komast í uppnám og verða slegnir minnimáttarkennd og óöryggi.

Þá er gripið til þess að afgreiða það sem þeir ekki skilja sem snobb.

Við þekkjum rulluna..

hilmar jónsson, 26.6.2012 kl. 23:29

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þú ert óborganlegur, Hilmar....

Jóhann Elíasson, 26.6.2012 kl. 23:37

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Noh! Sama rullan og hjá Eyjólfi,menning hvað!!???

Helga Kristjánsdóttir, 27.6.2012 kl. 00:31

4 identicon

Hilmar Jónsson endurtekur sig of oft.

Elvis Presley (IP-tala skráð) 27.6.2012 kl. 02:02

5 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Menning er nær hvergi styrkt eins svakalega af "menningarvitum# sem fara með almannafé og eru Því að ráðskast með það hvað er list og hverjir eigi að njóta styrkja og hverjir ekki.

Einfaldast er að framboð og eftirspurn ráði þessu eins og öðru.

Hvernig þætti það t.d. ef að ríkið veldi nokkra leikskóla út og styrkti sérstaklega eða ef sumir bændur fengju styrki ef að kýr þeirra og búsmali annar færi sérdeilis "fagur" eða "hæfileikaríkur"?

Óskar Guðmundsson, 27.6.2012 kl. 10:58

6 identicon

Já, óskar er með þetta. Lestu þetta stutta komment Hilmar Jónsson, og sjáðu hversu einfaldur heimurinn er miðað við myndin sem er máluð af honum í hausnum á þér.

Perla (IP-tala skráð) 28.6.2012 kl. 07:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband