HVERS VEGNA ARÐGREIÐSLUR??????????

Tvær leiðir eru til staðar til að hluthafar fyrirtækis sjái sér hag í því að fjárfesta í fyrirtæki annars vegar að hann fái greiddan arð út úr fyrirtækinu, til jafns við þá ávöxtun sem hann fengi annars staðar á fjármagn sem hann hefur fest í fyrirtækinu og svo hins vegar að VERÐMÆTI hlutar hans í fyrirtækinu AUKIST til jafns við þá ávöxtun sem hann fengi annars staðar og þá er að sjálfsögðu ekki greiddur út neinn arðurÞað er nokkuð ljóst að hluthafar Vinnslustöðvarinnar hafa ekki nokkra trú á að stjórnendur fyrirtækisins hafi nokkra getu til að auka verðmæti fyrirtækisins því velja þeir þá leið að fá greiddan út arð.


mbl.is Vinnslustöðin ver arðgreiðslur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það sem undrar mig er í viðtali við ríkisútvarið í morgun hældi forstjórinn sér af góðri afkomu fyrirtækisins, af hverju var hann þá ekki spurður um þessa 40 sem var sagt upp störfum?  Fjölmiðlamenn eru eins og börn í sandkassa þegar kemur að því að spyrja menn út úr.  Ekki rugga bátnum, ekki segja neitt sem er óþægilegt og vi sitjum uppi með hálfkveðnar vísur. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.6.2012 kl. 14:51

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta er mjög einfalt mál, hafi hluthafar ekki trú á að verðmæti fyrirtækisins aukist til jafns við þá vexti sem gerast á markaðnum velja þeir að fá arðinn greiddan út.  Gallinn við fjölmiðlamenn á Íslandi er sá að þeir hafa ekki þekkingu á því sem þeir fjalla um og því komast viðmælendur þeirra upp með að segja það sem þeim hentar.............

Jóhann Elíasson, 29.6.2012 kl. 15:40

3 identicon

@ÁCÞ: Þessum 41 starfsmanni var sagt upp störfum vegna þess að nýju fiskveiðilögin gera það að verkum að ekki er fótur fyrir þessum störfum seinna þegar lögin koma til framkvæmda. Svo einfalt er það. Annars er gott að heyra að fyrirtækið stendur vel, bara ef svo væri um fleiri fyrirtæki. Það er eðlilegt að forstjórinn hæli sér af góðri stöðu fyrirtækisins, svo eftir fáein ár verður auðvelt að sýna fram á hvaða áhrif þessi nýju lög hafa. Veiðigjald af sjávarútveginu á að leggja af enda fær þjóðin næga "rentu" af auðlindinni í formi skatta af geiranum.

@JE: Ég held að málið sé einfaldlega það að hluthafar sjá í hendi sér hvernig staðan hjá fyrirtækinu verður eftir fáein ár undir þessum fáránlegu nýju lögum. Menn vilja eðlilega fá eitthvað fyrir sína fjárfestingu og nú er lag, ekki eftir fáein ár þegar ríkið verður búið að taka nánast allt sem hægt er að taka af þessu fyrirtæki og öðrum. Þetta hefur því ekkert með stjórnendur að gera enda fátt mannfólk sem er í kraftaverkageiranum.

Helgi (IP-tala skráð) 30.6.2012 kl. 12:13

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég er ekki hrifin af þessu veiðigjaldi Helgi, ég vil rippa allt kerfið upp og innheimta kvótann, þeir sem sýnilega hafa keypt kvóta eiga að fá hann endurgreiddan eða afskrifaðar skuldir á móti, og síðan geta útgerðirnar leigt sér kvóta á sanngjörnu verði, og þá aðeins það sem þeir koma til með að veiða sjálfir.  Og sú leiga getur verið til 10-20 ára eða lengur.  En þá rennur arðurinn til þjóðarinnar. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.6.2012 kl. 13:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband