SUMIR KUNNA EKKI AÐ SKAMMAST SÍN...................

Við nefnum svosem engin nöfn en fyrsti stafurinn er Jóhanna Sigurðardóttir.  Hvernig getur manneskjan sagt þetta blygðunarlaust, þegar allar opinberar tölur sýna það svart á hvítu, AÐ SKATTBYRÐI BÆÐI Á EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKI, HEFUR AUKIST Í TÍÐ ÞESSARAR RÍKISSTJÓRNAR?????????
mbl.is Jóhanna: Dregið hefur úr skattheimtu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Manneskjan er því miður gangandi nátttröll. Og aðalgúrúin í þessari klúðursklíku.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.9.2012 kl. 17:15

2 identicon

Þetta er mjög einfalt reikningsdæmi.. samkvæmt tölum hagstofunnar sjálfrar þá eru skattheimta sem hlutfall af þjóðarframleiðlslu í dag rúmlega 4% lægra en það var fyrir tíð þessarar ríkisstjórnar.. svo þetta er bara alveg hárrétt hjá henni, ríkið er að taka minni bita af kökunni en t.d. í tíð síðustu ríkisstjórnar sjálfstæðisflokks..

Þetta getur þú sannreynt sjálfur á vefsvæði hagstofunnar... www.hagstofan.is

Þegar þú talar um opinberar tölur segi eitthvað svart á hvítu, þá hefur þú einfaldlega ekki skoðað opinberar tölur (það eru nefnilega þær tölur sem við fáum frá Hagstofunni)

Jón Bjarni Steinsson (IP-tala skráð) 19.9.2012 kl. 17:25

3 identicon

Eða.. hvaða opinberu tölur varst þú annars að tala um?

Jón Bjarni Steinsson (IP-tala skráð) 19.9.2012 kl. 17:29

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Bjarni Steinar, þjóðarframleiðslan hefur MINNKAÐ mjög mikið í tíð þessarar ríkisstjórnar.  Að vera að reyna að réttlæta þessa vitleysu hennar segir bara til um það hversu illa pólitísk blinda hefur farið með þig...............

Jóhann Elíasson, 19.9.2012 kl. 17:37

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Fyrirgefðu Jón Bjarni, að ég skildi fara vitlaust með nafnið þitt...............

Jóhann Elíasson, 19.9.2012 kl. 17:38

6 identicon

Ég er enginn samfylkingarmaður, ég horfi bara á tölurnar sem sérstakur áhugamaður um skatt.. það að þjóðaframleiðsla hafi minnkað skiptir ekki máli í þessu samhengi.. því þó að hún hafi aukist síðustu 3 ár þá hefur hlutfall skatttekna af henni haldist í stað.... Meðaltal síðustu 8 ára D er um 36-37% á meðan hún er í kringum 32% í tíð núverandi ríkisstjórnar..

Skatttekjur minnka í samræmi við minni þjóðarframleiðslu, en þeir aukast líka þegar hún eykst.. Það er á hlutfallinu þar á milli sem þú greinir hversu skattfrek stjórnvöld eru..

Þetta hefur ekkert með pólítík að gera, þetta er ósköp einföld stærðfræði.

Það er t.d. ekkert sem segir þér að ef D hefði verið hér við völd að þeir hefðu haldið sömu % og þeir höfðu haldið sér í 8 ár þar á undan, og skattbyrðin væri meiri en hún er í dag.. Það má alveg rifja það upp að ríkisstjórn Geirs hækkaði hér bæði álögur á eldsneyti og áfengi ítrekað í bullandi góðæri..

Hugsa að þú þurfir hugsanlega að athuga þína eigin pólitísku blindu...

Jón Bjarni Steinsson (IP-tala skráð) 19.9.2012 kl. 17:43

7 identicon

Ég bý ekki á íslandi nota bene, og kýs ekki þar.. þetta er því ekki af eigin pólitísku skoðunum eða hagsmunum sem ég er að benda þér á þetta...

Jón Bjarni Steinsson (IP-tala skráð) 19.9.2012 kl. 17:57

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hvar segi ég að þú sért Landráðafylkingarmaður?????  Mér er nokkuð sama hver er við völd, það á að fara rétt með.

Jóhann Elíasson, 19.9.2012 kl. 18:14

9 Smámynd: Brynjar Þór Guðmundsson

Jón Bjarni,

                                   Samtök atvinnulífsins
Skattahækkanir 2010                                     Mia. kr.
 Tekjuskattur einstaklinga                                 14,0
 Fjármagnstekjuskattur                                      4,6
 Tekjuskattur lögaðila (2011)                               2,5
 Tryggingagjald, 1,65%                                     12,0
 Auðlegðarskattur, 1,25%                                    3,5
 Áfengi og tóbak, 10%                                       1,1
 Bensín- og olíugjald, 3%                                   0,6
 Bifreiðagjald                                              0,5
 Virðisaukaskattur, 24,5% í 25,5%                           4,0
 Umhverfis- og auðlindaskattar                             10,0
Samtals hækkanir 2010
Tilvísun hér

Jóhönnu hefur meira að seigja að skattleggja sumt þólk um meira en 100% með hjálp auðlegðarskattsinns

Jón Bjarni, komdu með einhverjar tölur fyrir máli þín, ekki bara eithvað sem þú hefur sjálfur sett fram.

Og já, "Á fyrstu sexmánuðum ársins 2012 jókst fjárfesting um 19,3% samanborið við fyrstu sex mánuði ársins 2011. Skattheimtan var einnig meiri í tíð Sjálfstæðisflokksins fyrir hrun. Árið 2005 og 2006 námu skatttekjur ríkisins 31,5% af landsframleiðslu, en í ár er talan 27,3%" Það er náttúrulega snilld að hún skuli vera að hreykja sér af þessu, þetta þýðir ekkert annað en að viðskiftin hafi færst meira yfir í svarta hagkerfið.

Brynjar Þór Guðmundsson, 19.9.2012 kl. 18:31

10 identicon

http://hagstofan.is/?PageID=2602&src=/temp/Dialog/varval.asp?ma=THJ05132%26ti=Sundurli%F0un+%E1+tekjum+hins+opinbera+1998%2D2010+++%26path=../Database/thjodhagsreikningar/fjarmal_opinber/%26lang=3%26units=Millj%F3nir%20kr%F3na/hlutfall

Veldur "hlutfall af landsframleiðslu" veldu síðan skatttekjur.. og skoðaðu eins langt aftur og þú vilt.. og rifjaðu upp hverjir voru við stjórn hverju sinni

Hækkanir einar og sér gefa ekki rétta mynd af því sem er til umræðu.. því minni köku af þjóðarframleiðslunni sem fer í skatta.. því minni er skattbyrðin.. einföld lógíg

Jón Bjarni Steinsson (IP-tala skráð) 19.9.2012 kl. 18:49

11 identicon

Hinn íslenski gullfiskur virðist eiga alveg einstaklega auðvelt með að gleyma.. þessi umræða endurspeglar það...

Jón Bjarni Steinsson (IP-tala skráð) 19.9.2012 kl. 18:54

12 Smámynd: Jóhann Elíasson

En seint mun þessi "tæra vinstristjórn" gleymast og með framgöngu sinni hafa Heilög Jóhanna og Gunnarsstaða Móri tryggt það að hér á landi verður ekki slík stjórn í nánustu framtíð........................

Jóhann Elíasson, 19.9.2012 kl. 19:57

13 identicon

Ég er nú enginn sérfræðingur í þessu og er meinilla við ríkjandi ríkisstjórn því hún hefur reynst vanhæf í nánast öllu sem hún hefur tekið sér fyrir hendur. Klúðrar öllu því hún kann ekki að gera hlutina. EN...burtséð frá hægri eða vinstri, er ekki stigsmunur á því að hækka álögur á bensín og áfengi og jafnvel allt annað eins og kom fram hér á undan hjá Jóni Bjarna í góðæri heldur en þegar illa árar hjá fólki? Ég hefði nú haldið það. Þó mér þyki auknar álögur yfirleitt slæmar þá þykja mér þær þó skynsamlegri á meðan eitthvað er af fólkinu að hafa í stað þess að taka það sem mögulega hægt er af fólki svo það endi sem blásnauðir vesalingar sem leita þurfa ásjár hjá bæjarfélögum sínum. Skömm skaltu hafa Jóhanna og Steingrímur, þið hafið komið illa fram við fólkið í landinu.

assa (IP-tala skráð) 19.9.2012 kl. 20:46

14 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

Er þessi Jón Bjarni Flóttamaður?????????

Vilhjálmur Stefánsson, 19.9.2012 kl. 23:38

15 Smámynd: Brynjar Þór Guðmundsson

Jón Bjarni. Þetta sem þú setur fram eru ekki heimildir, það er ekki heimildir að vísa á hagstofuna tóma. Þar fyrir utan er það hefur það ekkert að segja að físa í hlutfall af landsframleiðslu, sú tala er breitileg frá ári til árs. Það sem skiftir máli er skattprósentan, það er nefnilega þannig að þegar skattprósentan fer yfir áhveðin mörk minkar innkoman þannig að þú ert í raun bara að benda á að með hækkun skatta undanfarina ára hefur minna komið inn, m.ö.o þetta hefur færst inn í svarta hagkerfið. Það að rukka 0% skatt skilar því sama og rukka 100%

http://www.vi.is/utgafa-vi/i-deiglunni/nr/1446/   Þetta eru alvöru heimildir

Hér er eitthvað handa þér Jón Bjarni,(ath, þetta eru bara tekjuskatturinn) " Af 150.000 kr. mánaðarlaunum var hún 14,3% árið 2007 en 16% 2011. Sambærilegar tölur fyrir 300.000 kr. laun eru 25% og 28,1% og 30,4% og 35,2% fyrir 600.000 kr. laun"

Brynjar Þór Guðmundsson, 20.9.2012 kl. 06:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband