ÞÁ ER NIÐURSTAÐA FENGIN Á ÞESSU FURÐULEGA MÁLI...............

Fyrsti lærdómurinn, sem við getum dregið af þessu er, AÐ MANNANAFNANEFND ER TÍMASKEKKJA og ætti að leggja hana STRAX niður.  Það er alveg ljóst að foreldrar eru fullfærir um að velja börnum sínum nafn og vakni einhver spurning varðandi nafngift, þá er bara viðkomandi prests að ræða við foreldrana og í sameiningu  komast þau örugglega niðurstöðu.  Ég óska stúlkunni til hamingju með þennan áfanga og einnig væri þess óskandi að ekki þurfi fleiri að ganga þessa braut.......................
mbl.is Fær að heita Blær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er algjör snilld!!! nú ætla ég að fara að ganga hart að mannanafnanefnd og fá nafn dóttur minnar samþykkt... hún heitir í höfuðið á manneskju sem heitir því nafni nú þegar en við fengum það ekki samþykkt! Ef það gerist aftur þá geri ég bara eins og Blær og Björk!

Thelma (IP-tala skráð) 31.1.2013 kl. 11:59

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já endilega, þú hefur fordæmið.  Nú er kominn tími til að fara að taka á þessum málum.  Kannski er þetta fyrsta skrefið í að stemma stigu við þessari ömurlegu forræðishyggju og miðstýringu, sem hér tröllríður öllu.  Ég óska þér góðs gengis í þínum málum Thelma..............

Jóhann Elíasson, 31.1.2013 kl. 12:30

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Og barnabarnið mitt sem fær ekki að heita Cesil í seinna nafni af því að það er karlmannsnafn að mati þessarar mannanafnanefndar, burtu með hana.  Nú verður sko riðið á vaðið.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.1.2013 kl. 13:03

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta líkar mér Ásthildur og gangi þér vel....................

Jóhann Elíasson, 31.1.2013 kl. 13:10

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Jóhann minn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.1.2013 kl. 14:00

6 identicon

Segi það með þér, þetta er fáránlegt fyrirbrigði. Að eitthvað fólk úti í bæ sé að vasast í því að annarra manna börn heita.

DoctorE (IP-tala skráð) 1.2.2013 kl. 08:48

7 identicon

Þið ættuð frekar að beina reiði ykkar að Alþingi og krefjast þess að lögum um mannanöfn sé breytt. Ég hef svosem ekkert á móti nafninu Blær sem kvenmannsnafn en þessi dómur í gær var mjög furðulegur og m.a.s. ýmsar rangfærslur í honum.

Lögin eru mjög einföld og segja að drengjum megi ekki gefa stúlkunafn og öfugt. Ef þið kunnið svo illa við þá reglu hamrið á frambjóðendum núna fyrir kosningar og fáið þá til að endurskoða lögin. Dómsmálaráðuneytið getur ekkert lagt niður nefnd sem þeir eru skyldugir að halda uppi skv. lögum.

Halldór (IP-tala skráð) 1.2.2013 kl. 08:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband