ÝMSIR "STJÓRNLAGARÁÐSMENN" TELJA SIG VERA Í GUÐATÖLU.............

Og að þjóðin standi í MIKILLI þakkarskuld við þá, en þetta er MIKILL misskilningur.  Margt þetta fólk álítur að þessar tillögu þeirra að nýrri stjórnarskrá sé álíka mikilvægt plagg og BOÐORÐIN TÍU voru fyrir Ísraelsmenn á sínum tíma.  Það er kannski rétt hjá þessu fólki að líta aðeins á skipunarbréfið, sem það fékk í hendurnar þegar það hóf "störf".  Það átti nefnilega ALDREI að gera tillögu að NÝRRI STJÓRNARSKRÁ heldur að gera tillögu að BREYTINGUM Á ÞEIRRI STJÓRNARSKRÁ SEM FYRIR VAR.  Það er ekki nóg með að kosningin til þjóðlagaráðs væri dæmd ógild, en farið var framhjá því með stofnun stjórnlagaráðs, heldur fór stjórnlagaráðið útfyrir starfssvið sitt og gerði bara eins og þeim sýndist.  Þetta fólk lítur svo stórt á sig og verk sín að það hefur stofnað "stjórnmálasamtök" til þess að halda uppi verkum sínum og enn á ný er reynt að sína fram á að þjóðin geti ekki án verka þeirra verið og það sé nú bara vanþakklæti og molbúaháttur af þjóðinni að kunna ekki að meta þessar tillögur þeirra, sem eru að margra mati MUN MINNA VIRÐI EN PAPPÍRINN SEM ÞÆR ERU SKRIFAÐAR Á.  En sem betur fer er allt útlit fyrir að lítið mark verði tekið á þessum "HROKAGIKKJUM" sem kalla sig lýðræðisvaktina og hafa ekkert fram að færa sem getur talist einhvers virði fyrir land og þjóð...........
mbl.is Líkti forseta Alþingis við Trampe greifa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Já það er spurning hvort að boðorðin tíu hafi nokkurn tímann farið í þjóðaratkvæðagreiðslu.Var þeim ekki bara demt á þjóðina.

Jósef Smári Ásmundsson, 8.3.2013 kl. 22:05

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jú var það ekki?????

Jóhann Elíasson, 8.3.2013 kl. 23:14

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Þarna fuku seðlar fyrir lítið,nær hefði verið að brúka þá í endurnýjun tækja Landsspítalans.

Helga Kristjánsdóttir, 9.3.2013 kl. 00:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband