VONANDI GETA ÍSLENDINGAR ÞÁ FARIÐ AÐ ANDA LÉTTAR...............

Því sem betur fer, þá sýndu stjórnvöld hér á landi EKKI þá linkind, sem Píratar og sumir fyrrverandi stjórnarmeðlimir vildu viðhafa í þessu máli.  Ég er nokkuð viss um það að fyrrverandi Innanríkisráðherra hefði sent flugvél eftir honum, á kostnað ríkisins (þá hefðu verið til nægir peningar í ríkissjóði).  Þeir voru ekkert að halda því á lofti að þessi maður "lak" þessum upplýsingum ekki af neinni hugsjón heldur SELDI hann gögnin fyrir háar upphæði (sem hann hefur örugglega ekki gefið upp til skatts).  Það þykir kannski allt í lagi að þessi maður svíki milljarða undan skatti en ég er ekki viss um að Björgólfur Thor fengi sömu meðferð (nefni hann bara sem dæmi en þetta gæti átt við hvern sem er).  Það er nú svolítið undarlegt að nokkur hafi viljað fá stórhættulegan mann til landsins, sem var vitað að gerði ekkert annað en að skapa vandræði og tóm leiðindi.......................
mbl.is Fær hæli í „lýðræðislegu ríki“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hallgeir Ellýjarson

Einkaaðilar voru tilbúnir í að kosta flug hans hingað til lands.

Hallgeir Ellýjarson, 23.6.2013 kl. 12:40

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég er ekkert að tala um það og þess fyrir utan ætluðu þessir einkaaðilar líka að greiða allan þann kostnað sem hlytist af honum á meðan hann dveldi hér á landi?????????

Jóhann Elíasson, 23.6.2013 kl. 13:10

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Já af því að þrítugir tölvunarfræðingar eru svo stórhættulegar týpur...

Guðmundur Ásgeirsson, 23.6.2013 kl. 23:15

4 Smámynd: Hallgeir Ellýjarson

Jóhann: Hvaða kostnað?

Hann færi létt með að ná í sér gott og vel launað starf hér á landi.

Hallgeir Ellýjarson, 24.6.2013 kl. 00:43

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Guðmundur, það fer ekki eftir aldri og starfsstétt hvort menn eru glæpamenn eða ekki.

Jóhann Elíasson, 24.6.2013 kl. 08:14

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hallgeir, heldur þú virkilega að þessi maður verði eins og hver annar "túristi"???????  En sem betur fer þarf ekki að hafa af því neinar áhyggjur að hann komi hingað til lands.

Jóhann Elíasson, 24.6.2013 kl. 08:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband