FARA "MANNRÉTTINDSAMTÖK" EFTIR VÆNTANLEGRI ATHYGLI ÞEGAR AÐSTOÐAÐ ER VIÐ MÁLIN?????

Birgitta Jónsdóttir og aðrir píratar og ekki má gleyma Ögmundi Jónassyni, Ástþóri Magnússyni og fleirum sem hafa farið mikinn og verið með miklar yfirlýsingar um málefni Snowdens.  En annað mál kom upp fyrir nokkru þar sem Nígerísk kona, sem hafði verið seld í vændi, kom fram og aðstoðaði lögreglu í Danmörku við að uppræta mansalshring og bjarga þannig mörgum mannslífum og mörgum konum og körlum frá ömurlegu lífi.  Þakkirnar sem hún fékk voru að henni var neitað um dvöl í Danmörku og send aftur til Nígeríu.  Ekki man ég til að Birgitta og Ögmundur ásamt fleirum hafi nokkuð fjallað um þetta mál.  Var það kannski ekki nógu og fjölmiðlavænt?????


mbl.is Kemst ekki frá Rússlandi og vill hæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Athyglisvert ! sumar plöntur eru hættulegar þeim sem ekki eru plöntufróðir, en Það er smásaman að koma í ljós hverskonar plöntur píratar standa fyrir .           

Hrólfur Þ Hraundal, 12.7.2013 kl. 21:04

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Þetta er umhugsunarvert og þetta mál með vændiskonuna er með sorglegri málum.

Skilaboðin voru auðvitað þau að láta ekki lögguna vita svo áfram geti þrifist sá markaður sem vændi er. Mjög mikill vansi fyrir dönsku þjóðina. Það má ekki líta fram hjá svona málum.

Maður spyr sig hver beitti þrýstingi til að afgreiða málið með þessum hætti.

Við Íslendingar erum ekki mikið betri meðan við kærum ekki dólgana sem svívirtu náttúruna okkar og héldu meira að segja sýningar á því í Þýskalandi eða Austurríki. Hvar var þá allt náttúruverndarfólkið.. hef ekki mikið heyrt í því um það mál ?

Kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 13.7.2013 kl. 12:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband