HVER ERU VIÐURLÖGIN VIÐ ÞVÍ AÐ LJÚGA FYRIR DÓMI?????

Það er verið að rétta yfir fólkinu vegna þess að það hlýddi ekki fyrirmælum lögreglu.  Það eru mörg vitni að því að það óhlýðnaðist þessum fyrirmælum og þar af er enginn vafi á sekt fólksins og með því að lýsa sig saklausan af þessum ákærum er fólkið augljóslega að ljúga og það eiðsvarið.  Hefur fólkið þá ekki fjölgað refsiverðum hlutum um einn????
mbl.is Neituðu öll sök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það eru mannréttindi í réttarríki að geta varið sig fyrir ákærum. Það er ekki refsivert fyrir sakborning að segja ósatt fyrir dómi, einungis vitnum verður refsað fyrir það. Sakborningi er einnig óskylt að fella á sig sök, það er hlutverk ákæruvaldsins að sanna sekt hans.

Arngrímur Eiríksson (IP-tala skráð) 28.1.2014 kl. 10:41

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það eru nú ekki mikil mannréttindi að hafa leifi til að ljúga fyrir dómi..............

Jóhann Elíasson, 28.1.2014 kl. 10:45

3 identicon

Þau eru ekki að neita þeirri staðreynd að þau hafi óhlýðnast fyrirmælum lögreglu, heldur að sú óhlýðni hafi ekki verið refsiverð eins og á stóð. Þau færa svo bara rök fyrir því og ákæruvaldið fyrir sekt þeirra.

Arngrímur Eiríksson (IP-tala skráð) 28.1.2014 kl. 11:04

4 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Skil ekki hvert þú ert að fara Jóhann.

Guðjón Sigþór Jensson, 28.1.2014 kl. 11:15

5 identicon

http://visindavefur.is/svar.php?id=47329

og svo fór fólk að væla vegna nýrra mótmælalaga í Úkraínu... þar var einmitt eitt af aðal atriðunum að mótmælendur mættu ekki fela andlit bak við grímu og bera hjálma á höfði... meðan á Íslandi er fólk handdekið og hent fyrir dómstóla strax og nokkrar hræður mæta út á eitthvað hraun... já, Ísland er STÓRASTA landið í heim...

VAT (IP-tala skráð) 28.1.2014 kl. 11:18

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Guðjón, ég get ekki með nokkru móti séð að skilningsleysi þitt sé mitt vandamál.................

Jóhann Elíasson, 28.1.2014 kl. 11:49

7 Smámynd: hilmar  jónsson

Get ekki með nokkru móti skilið hvernig fólk nennir eða finnur sig í að mæta á síðuna hjá þessum uxa honum Jóhanni.

Drottinn minn, heimskan og hrokinn... brrr

hilmar jónsson, 28.1.2014 kl. 11:58

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Samt nennir þú að koma inn Hilmar þrátt fyrir að hafa ítrekað þessa skoðun þína oft, er þetta ekki það sem er kallað masókismi????

Jóhann Elíasson, 28.1.2014 kl. 12:01

9 identicon

Hjá málshefjanda er umtalsverð vanþekking á réttarfari augljós. Fyrir rétti á Íslandi er enginn eiðsvarinn og þá alls ekki sakborningar. Einungis er heimilt að taka eið af vitni og er þó nánast aldrei gert. Hins vegar er eiður gjarnan tekinn í bandarískum bíómyndum en þær eru vafasamar heimildir um alvöru réttarfar.

Þorvaldur S (IP-tala skráð) 28.1.2014 kl. 13:21

10 identicon

Tek undir með Hilmari.  Þú ert meiri bjáninn Jóhann og ég skal lofa þér að skrifa ekki hér oftar

baldinn (IP-tala skráð) 28.1.2014 kl. 13:24

11 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir "baldinn" ekki kem ég til með að sjá neitt eftir þér.......

Þorvaldur, geta menn þá sagt nánast það sem þeim sýnist fyrir rétti án nokkurra afleiðinga?????  Spyr sá sem ekki veit þann sem veit þetta.

Jóhann Elíasson, 28.1.2014 kl. 13:40

12 identicon

Er fólk eiðsvarið við þingfestingu dómsmáls?  Mig minnir að svo sé ekki.  Gerist það ekki fyrst við vitnaleiðslur?

Hilmar (IP-tala skráð) 28.1.2014 kl. 14:07

13 Smámynd: Jón Ragnarsson

Mér finnst nú mjög vafasamt að kæra fólk fyrir að hlýða ekki lögreglu. Það er svona eins og að handtaka fólk fyrir að sýna mótþróa við handtöku.

Jón Ragnarsson, 28.1.2014 kl. 17:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband