EITTHVERT MISRÆMI ER Í SKOÐANAKÖNNUNUM..............................

Niðurstaða þeirra fara sennilega eftir því fyrir hverja þær eru gerðar.  Ekki er langt síðan könnun var gerð sem sýndi að meirihluti væri fyrir úrsögn Breta úr ESB......


mbl.is Fleiri vilja vera áfram í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 Alveg rétt. Þetta hef ég alltaf sagt, því að það sést best fyrir hverjar einustu kosningar hér á landi, eins og um daginn, þegar kosið var til sveitastjórna. Þess vegna tek ég öllum skoðanakönnunum með fyrirvara. Við getum gert skoðanakönnun um eitthvert þjóðþrifamál og látið hana fara þannig, að okkar málstaður hafi sigurinn. Ég tel mjög svo líklegt, að flokkarnir hér á landi láti hanna fyrir sig skoðanakannanir fyrir kosningar, og það geri Já-Ísland og allt þetta fólk hérna á Íslandi, sem vill inn í ESB, líka; kannanir, sem sýna allt aðrar niðurstöður, en skoðanakannanir á vegum Heimssýnar gera. Ingibjörg Sólrún hafði því lög að mæla, þegar hún sagðist ekki taka mark á skoðanakönnunum, því að þær væru ekki kosningar. Það eru því ábyggilega ekki Bretar einir, sem eru í sökinni, hvað þetta varðar. Við Íslendingar erum engu betri. Ætli við getum ekki fundið fleiri þjóðir, þar sem svona lagað er að finna líka? Ég býst við því.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 18.6.2014 kl. 22:19

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þegar ég var að læra úti í Noregi, þá var prófessor, sem kenndi aðferðafræði, sem sagði að það væri ekki hægt að taka mark á skoðanakönnunum því fólk svaraði því sem það HÉLDI að spyrjandinn vildi heyra.  Ég held að það sé nokkuð mikill sannleikur í þessu hjá honum.  Og svo er nokkuð skondið að fylgjast með því hvernig mismunandi aðilar "túlka" skoðanakannanir, jafnvel þótt skoðanakönnunin sýni aðila í sem stóran "tapara" þá er hann að eigin mati "sigurvegari" skoðanakönnunarinnar  miðað við einhverjar forsendur sem hann gefur sér sjálfur......

Jóhann Elíasson, 19.6.2014 kl. 09:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband