ÞAÐ ERU EKKI MARGIR SEM ERU ATVINNULAUSIR ÁNÆGJUNNAR VEGNA

En við að lesa þessa fyrirsögn, mætti ætla það.  En ef þessi áform ganga eftir er það bara af hinu góða.  En hvað svo????  Ekki er hægt að vera á svona "úrræði" endalaust? Það sem langtímaatvinnulausa vantar er varanleg lausn ekki einhver "bútasaumur", sem mjög litlu skilar til lengri tíma.....................
mbl.is Vilja skylda atvinnuleitendur til starfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það gæti verið góð hugmynd að leggja niður þetta bákn sem heitir Vinnumálastofnun og sem hefur engu skilað. Þá væri amk. hægt að spara tugi milljóna í launakostnað þessara duglausu starfsmanna þar. Þá geta atvinnuleitendur fengið sjálfkrafa atvinnuleysisbætur í 36 mánuði.

Í staðinn fyrir vmst. geta skilvirkari, (etv. einkareknar) vinnumiðlanir utan kerfisins tekið við þessu hlutverki, eins og tíðkast í Betlandi (Job Shops). Eins og er eru eingöngu til einkareknar vinnumiðlanir fyrir elítuna/hálaunafólk, eins og t.d. PWC. Það vantar alveg aktífar vinnumiðlanir fyrir venjulegt fólk. Síðan er það hlutverk ríkisins að byggja upp atvinnuvegina (sérstaklega mannfrekan útflutningsiðnað) og gera atvinnurekstur auðveldari í staðinn fyrir að draga lappirnar.

Maður fékk alveg nóg af því, hvernig VG í síðustu ríkisstjórn barðist hatrammlega gegn öllum atvinnurekstri, en núverandi ríkisstjórn getur ekki til eilífðar lifað hátt á mistökum vinstraliðsins. Einhvern tíma verða þeir að taka puttann út úr gatinu og gera eitthvað gagn.

Pétur D. (IP-tala skráð) 22.9.2014 kl. 10:33

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála þér fyrirsögnin segir allt sem segja þarf um þessa menn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.9.2014 kl. 11:44

3 Smámynd: Elle_

Eru þeir ekki skyldugir að vera að leita að vinnu?  Það er líka vinna.

Elle_, 22.9.2014 kl. 15:27

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þeir eru að leita að vinnu, þeir verða að gera það til að fá bætur, það er fylgst vel með því.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.9.2014 kl. 19:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband