NÚ ERU MENN FYRST AÐEINS AÐ VAKNA TIL LÍFSINS..............

Ég man nú ekki betur en að bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum, hafi verið einn af dyggustu stuðningsmönnum Landeyjahafnar í upphafi.  En nú virðist vera farið að renna upp fyrir honum að "hrakspárnar" voru réttar og eru nú að rætast. Nú er komið í ljós að þessi framkvæmd er algjörlega misheppnuð og bara dýpkunarframkvæmdir hafa orðið 8 - 10 sinnum meiri en gert var ráð fyrir svo eittvað sé nefntÆtli hafnargerðin og allt vesen í kringum hana sé ekki komin í svipaðar upphæðir og jarðgöng, milli Lands og Eyja hefðu kostað?  Eru ekki svona vinnubrögð kölluð að spara aurinn en kasta krónunni???????


mbl.is Miklar grynningar í Landeyjahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hreint ótrúlegur fjáraustur í gangi þarna. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.1.2015 kl. 19:36

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það mætti kannski, segi kannski, réttlæta kostnaðinn við allan þennan sandmokstur, ef hann bæri einhvern árangur. En því fer fjarri að svo sé. Það verður alveg sama hvað miklu er mokað frá höfninni, sandburðurinn við ströndina hefur alltaf vinninginn. Hvað gerist í næsta Kötlugosi? Höfnin verður að líkum langt inni í landi. Sennilega verðu búið að eyða andvirði ganga út í Eyjar nokkrum sinnum í þessa vitleysu áður en kjánarnir sem þessu ráða taka sönsum.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 31.1.2015 kl. 10:22

3 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Jóhann, það mun kannski rætast það sem ég spáði fyrir er þeir byggðu þessa höfn?

Ég spáði því að eftir nokkra ára vandræði þá myndu þeir segja að höfnin væri ómöguleg svona og það þyrfti að lengja garðana út fyrir rif.

Svo langar mig að benda Axel á það að næsta gos getur verið hvar sem er, jafnvel í Eyjum.

Stjórnvöld hafa vaðið villu vega í þessu máli, það voru margir búnir að varavið þessu, þar á meðal ég.

Kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 31.1.2015 kl. 11:00

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Helgi, ég nefndi Kötlu því gos í henni hefur og mun gerbreyta sandlögum við suðurströndina. Aðrar þekktar eldstöðvar í landshlutanum eru ólíklegar til að vera áhrifavaldar í sandburði á ströndinni kringum höfnina. Eldgos í Eyjum myndi lítil eða engin áhrif hafa á Landeyjarhöfn,  aðeins byggðina í eyjum. Katla er komin yfir tímann sinn, en ólíklegt að eldgos verði næstu 5000 árin í Heimaey, þó ekki sé hægt að slá neinu föstu þar um.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 31.1.2015 kl. 12:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband