ALLT ER NÚ TIL...............

Það hefur nú heyrst af "kjötbökum" þar sem ekkert kjöt er og einhverjir "kóla"-drykkir sem samt eru ekki kók, það hlýtur að vera eitthvað svoleiðis sem er átt við þegar talað er um "fölsuð matvæli" en annað eins og egg og annað þess háttar er varla neitt sem er falsað???????


mbl.is Fölsuð matvæli í tonnavís
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Með eggin þá er reynt að merkja þau til dæmis "lífræn" en eru það ekki, eða sagt rangt til um upprunaland til að knýja fram hærra verð.

Hilmar (IP-tala skráð) 17.2.2015 kl. 12:06

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Reyndar er allt sem merkt er "lífrænt" dýrara.  Sumir vilja meina að eini munurinn sé að það sem er merkt "lífrænt" sé bara verðið.....

Jóhann Elíasson, 17.2.2015 kl. 13:09

3 Smámynd: Jón Logi Þorsteinsson

Það sem merkt er lífrænt og með stimpil frá vottunarstofu á reyndar að vera það. En, - það er hægt að falsa stimpla. Erfitt fyrir innflutt að falsa frá vottunarfyrirtækinu TÚN þó....
En það er hægt að gera ýmislegt, og líka innanlands. Kaupið þið KORNAX hveiti, og þar stendur á pakkningunni skýrum stöfum "Íslensk Framleiðsla". Það er ekkert íslenskt hráefni í þessu. Reyndar bara ögn til á markaði af íslensku hveiti. Sama var með frosið grænmeti sem hér var á markaði.Bara sett í pakkningar ef ég man rétt...
Væri það þá ekki flott fölsun að flytja inn egg, pakka þeim svo sem bæði íslenskum og bæta kannski við lífrænu í leiðinni?
Hugsið málið, - það er margt hægt, - en fréttin er nú ekki nógu vel unnin finnst mér....

Jón Logi Þorsteinsson, 17.2.2015 kl. 15:13

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta var gert með grænmeti bara fyrir örfáum árum, það var flutt inn (frá Hollandi minnir mig), þvegið og sett í pakkningar og selt sem Íslenskt.  Einhver þingmaðurinn spurði að því hvort það væri þannig að ef Kínverji kæmi til landsins hvort hann væri orðinn Íslendingur þegar hann væri búinn að fara í bað hér á landi? laughing

Jóhann Elíasson, 17.2.2015 kl. 15:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband