PÍRATAR NENNA HELDUR EKKI AÐ SETJA SIG INN Í MÁL NEMA ÞEIR HAFI PERSÓNULEGAN ÁHUGA Á VIÐKOMANDI MÁLI

Í það minnsta var ekki hægt að skilja annað á þeim í viðtali í Kastljósinu í gærkvöldi.  Og tal þeirra um tímaskort, er algjörlega út í hött.  Ekki virtist vera mikill tímaskortur hjá "Hreyfingunni" á síðasta kjörtímabili, en þingflokkur þeirra var þriggja manna eins og þingflokkur Pírata.  Þetta snýst frekar um það að vera skipulagður í vinnubrögðum og nýta vel þann tíma sem er til ráðstöfunar.  Það mætti kannski benda þessu liði á að það eru stórfín hraðlestranámskeið í boði hjá Námsflokkum Hafnarfjarðar og einnig eru þar góð tímastjórnunarnámskeið...............


mbl.is Píratar „venjulegur vinstriflokkur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Þú segjir það Jóhann, alveg án þess að roðna. það mætti halda að þú hafir verið þingmaður í 3ja manna þingflokki, og vitir þetta upp á 10. Getur verið að þú sért flautuþyrill, sem veist ekkert, en villt láta sem þú vitir um hvað þú ert að tala. Það er erfitt að vera heiðarlegur, sérstaklega innan um fólk eins og þig, sem gagnrýnir m.a. klósettferðir viðkomandi, hvað þá annað. Annars ertu svona ákveðin dúlla sem mér þykir vænt um, þarft bara að hemja þig, ekkert annað!!! 

Jónas Ómar Snorrason, 8.4.2015 kl. 14:42

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég vitna í "Hreyfinguna" þegar ég skrifaði þennan pistil sem var einnig þriggja manna þingflokkur og virtist það ekki koma í veg fyrir að þau gætu sett sig inn i málin.  Í það minnsta var hjáseta þeirra ekkert í líkingu við það sem er hjá Pírötunum.  Ég mman nú ekki eftir að hafa gagnrýnt klósettferðir þínar, enda hef ég afskaplega lítinn áhuga á þeim eins og þín um gjörðum og þér yfirleitt.  Ég tel enga ástæðu til að liggja á skoðunum mínum og er nokkuð sama um hvernig þær leggjast í menn ef menn eru á móti þeim er það þeirra mál en ekki mitt................

Jóhann Elíasson, 8.4.2015 kl. 15:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband