HVERS VEGNA VAR ENGINN FAGMAÐUR Í RÖGNUNEFNDINNI?????

Eða í það minnsta einhver sem hafði vit á flugi og þeim kröfum sem eru gerðar til flugvalla?  Ég held að það að byggja flugvöll á hrauni, sé ekki alveg sá traustasti grunnur, sem er hægt að hugsa sér.  Getur það hugsast að nefndin hafi átt að komast að fyrirframgefinni niðurstöðu????  Enda get ég ekki betur heyrt en að mikil óánægja sé með störf nefndarinnar og fólk hafi það á tilfinningunni að það hafi verið haft að fíflum.  Enda var Dagur B ansi fljótur að tala um að nú yrði hægt að loka neyðaflugbrautinni því áhættan af lokun hennar væri "ásættanleg". Hvað svo sem það þýðir, er "ásættanlegt" að fórna fimm eða tíu mannslífum svo Valsmenn geti haldi byggingaframkvæmdum áframKannski Dagur geti svarað því? Þetta var líka næstum EINA niðurstaðan sem nefndin komst að jú og reyndar það að best væri að byggja annan flugvöll í Hvassahrauni.  Þarna var líklega verið að leggja til ANNAÐ LandeyjahafnarævintýriVar niðurstaðan kannski "pöntuð" eftir allt saman og fyrir hvern var álitið gert???


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Þetta er furðuleg niðurstaða,sérstaklega þegar litið er til þess að ekki var núverandi flugvöllur nefndur á nafn. Heyrði Ómar Ragnarsson,lýsa í útvarpsviðtali að vindstrengur frá Reykjanesfjallgarði væri varhugaverður sérstaklega í flugtaki. Vonandi man ég það rétt eftir honum haft.Mb.Kv. 

Helga Kristjánsdóttir, 1.7.2015 kl. 03:22

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Já miðað við að flugvöllurinn væri í Hvassahrauni.

Helga Kristjánsdóttir, 1.7.2015 kl. 03:23

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jóhannes Snorrason fyrrum flugstjóri, var víst búinn að gera margar tilraunir á þessu svæði og niðurstaðan var sú að veðuraðstæður á þessu svæði væru með öllu óviðunandi og svo er hraunið þarna, þannig að ekkert vit er í að hafa þarna flugvöll.  Hvað skyldi hafa breyst þarna síðustu árin????

Jóhann Elíasson, 1.7.2015 kl. 07:28

4 identicon

Það var fagmaður í nefndini, hann heitir Dagur B. Eggertsson og er besti borgarstjóri sem við höfum haft.

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 1.7.2015 kl. 12:31

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Við skulum láta liggja á milli hluta hversu góður borgarstjóri Dagur er, Helgi.  En í hverju liggur hans fagmennska í flugmálum?

Jóhann Elíasson, 1.7.2015 kl. 12:35

6 identicon

Hann er bara fagmaður í öllu sem hann gerir...eins og sönnum Samfylkingar manni sæmir.

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 1.7.2015 kl. 15:47

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þú notar sömu rök og litlu krakkarnir á leikskólunum "AF ÞVÍ BARA" og ert alveg sérstaklega rökfastur og málefnalegur.  Þú átt engan þinn líkan Helgi. laughing 

Jóhann Elíasson, 1.7.2015 kl. 16:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband