EN EINHVERJIR VIRÐAST VERA TILBÚNIR TIL AÐ FERÐAST Í ÞEIM

Fólk hefur alveg val um það hvort það heimsækir "ruslakisturnar" ef það er á landinu á annað borð - en ef fólk kaupir sér far með "ruslakistum" hefur það ekkert val - það verður að ferðast með þeim þar til komið er á áfangastað.


mbl.is „Enginn vill gista í ruslakistu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

það má svo alveg skemmta sér við að skoða þessar tvær fréttir í samhengi við tilvitnaða frétt:

http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2015/09/17/samid_um_haerra_raforkuverd/

http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2015/09/17/gera_athugasemd_vid_auglysingar_wow/

Annars er stærsti kosturinn við gripaflutningaflugfélögin að samkeppnin neyðir hin flugfélögin til að lækka verðin hjá sér.

ls (IP-tala skráð) 17.9.2015 kl. 15:39

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég lét einu sinni blekkjast til að fara með "gripaflutningaflugfélagi" til London.  Það varð VERULEG seinkun á fluginu en sem betur fór hafði ég ágætis bók með mér "A Random Walk Down Wall Street", það er rétt hægt að ímynda sér hversu seinkunin var mikil að ég náði að klára bókina (las hana frá uppphafi til enda) og er ég ekki sá hraðasti þegar kemur að lestri.  Loksins þegar kom að því að fara um borð í flugvélina uppgötvaði ég að það var það lítið pláss milli sætanna að ég gat ekki setið beinn í sætinu, þó er ég ekki nema 187 cm á hæð og hugsaði ég með mér að sem betur fer væri ég ekki á leið til Ameríku.  Þessi reynsla varð til þess að framvegis borgaði ég einhverjum þúsund köllum meira fyrir að ferðast með almennilegu flugfélagi....

Jóhann Elíasson, 17.9.2015 kl. 16:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband