FÓLKI FINNST ÞESSI "AF ÞVÍ BARA RÖK" EKKI NÆGJA TIL BREYTINGA

Jú og líka þau "rök" "Að það sé hægt að fara í matvöruverslanir sums staðar erlendis og kaupa vín".  En þó svo að þetta frumvarp sé orðið árvisst hjá "stuttbuxnastrákunum" er það líka orðið árvisst að það sé fellt.  En það koma alltaf upp nýjar kynslóðir "stuttbuxnastráka" og allir virðast þeir eiga það sameiginlegt að læra EKKI af fyrri reynslu "stuttbuxnastrákanna" og halda því áfram með sömu þvæluna ár eftir ár.


mbl.is Vilja ekki áfengi í matvöruverslanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

af Norðurlöndunum þá er  það bara Danmörk sem leyfir þetta í verslunum.
Svíþjóð, Noregur, Finnland og Færeyjar hafa öll sama fyrirkomulag og ísland

Gunnar (IP-tala skráð) 13.11.2015 kl. 10:31

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Í Noregi má selja venjulegan bjór í venjulegum búðum til kl. 8 á kvöldin. Í Finnlandi má selja áfengi að 4,7% styrkleika í venjulegum stórmörkuðum. Það eru því bara Íslendingar og Svíar sem viðhalda þessari algjöru ríkiseinokun.

Danir hafa valið að herma frekar eftir barbararíkinu Þýskalandi en fóstruríkjunum á Norðurlöndunum.

Að viðhalda núverandi fyrirkomulagi hefur fyrst og fremst verið rökstutt með "allt er svo frábært núna - mikið úrval og margir sölustaðir og gott aðgengi því ÁTVR vill fyrir engan muni espa upp andstöðu við sig - en um leið hátt verð og erfitt aðgengi því drykkja má ekki vera of mikil". Sem sagt þversögn ef einhver slík er til. Og íhaldssemi - mikil íhaldssemi og ótti við að AÐRIR muni fara sér af voða á meðan stjórnmálamennirnir fylla vínskápana sína á hverju ári með fríhafnarvodka. 

Geir Ágústsson, 13.11.2015 kl. 11:35

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég bjó í Noregi á námsárunum og í matvöruverslunum mátti selja bjór, eins og Geir bendir á, en sá hængur var á að þar var eingöngu hægt að fá tvær söluhæstu bjórtegundirnarÞetta var útskýrt með því að verslanirnar væru ekki að leggja út í mikinn lagerkostnað vegna þessara vara.  Þetta er einmitt það sem andstæðingar þessa frumvarps hafa verið að benda á AÐ ÞESSI BREYTING, EF AF VERÐI, LEIÐI TIL ÞESS AÐ VÖRUFRAMBOÐ VERÐI MINNA OG EINSLEITARA og myndu þá einhverjir segja AÐ "FRELSIÐ" VÆRI NOKKUÐ DÝRU VERÐI KEYPT.

Jóhann Elíasson, 13.11.2015 kl. 14:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband