"BERIN ERU SÚR".....

Alveg er þetta dæmigert fyrir viðbrögð Vinstrimanna, þegar niðurstaðan er þeim ekki að skapi, að skjóta bara sendiboðann og kenna öllum um niðurstöðuna nema sjálfum sér.


mbl.is Mælir ímynd frekar en þjónustu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Rétt er það, Jóhann.

Svo vil ég benda Degi á að það er samband milli ímyndar og upplifunar af þjónustu. Ef þjónustan er slæm, þá verður ímyndin þar eftir. Ég ætla að segja þetta einu sinni enn, Dagur, svo að þú skiljir það örugglega: Ímyndin endurspeglar þjónustuna.

En ef þú vilt bara spyrja notendur þjónustu á vegum borgarinnar, þá ættirðu að spyrja gamla fólkið og öryrkjana, sem ekki fá aðstoð við hreingerningar. Nú, er það ekki ánægt? Allt í lagi, sjáum til. Láttu kanna hug gamla fólksins sem var hent út úr félagsheimilinu við Vatnsmýrina og því vísað burt eitthvað annað á lélegri stað. Ha? Er það líka óánægt? OK. Spyrðu börnin með sérþarfir sem munu missa allan stuðning því að borgin þarf að borga milljónaleigu fyrir stærðar hús úti á Granda fyrir listamannaelítuna. Jæja, gengur það heldur ekki, eru börnin líka fúl út í ykkur?

Þá er bara eitt að gera: Láttu spyrja Björk Vilhelmsdóttur hvað henni finnst og láttu það nægja.

Pétur D. (IP-tala skráð) 16.2.2016 kl. 16:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband