MEÐ ÞVÍ AÐ STANDA UTAN MYNTBANDALGS EVRÓPU ERU BRETAR ÓBEINT AÐ SEGJA SIG ÚR ESB

En samkvæmt meðfylgjandi frétt, virðast nokkuð margir innan Breska Íhaldsflokksins, gera sér fulla grein fyrir því að ESB er handónýtt "apparat" og er lítið annað en botnlaus hít, sem gerir ekkert gagn en skaðar aðildarríkin frekar en hitt.


mbl.is ESB klýfur Íhaldsflokkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Jóhann, ætli flest ríki ESB standi ekki utan Evru, en eru að einhverju leiti tengd henni, eða vilja tengjast henni.

Jónas Ómar Snorrason, 22.2.2016 kl. 10:39

2 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Fór yfir þjóðir í huganum sem eru með Evru, telst til 10 þjóðir af 28, gæti skeikað um 1-2 þjóðir. Englendingar hafa frá upphafi staðið utan, enda pundið ávalt sterkt, sterkust er sennilega íhaldssemin þeirra:) En trúðu mér, englendingar eru ekki á leið út úr ESB Jóhann. Það eru allt of miklir hagsmunir í húfi fyrir þá, en góðu fréttirnar samt þær, að ESB er að fara að slaka á kröfum. Svo vilja Bandaríkin að þeir séu inni, en það eru sögusagnir að ég held.

Jónas Ómar Snorrason, 22.2.2016 kl. 10:58

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jónas Ómar, mér þykir alveg ótrúlegt hversu mikla vanþekkingu þú lætur í ljósi með þessari athugasemd þinni.  Eins og þú ættir að vita þá er aðild að myntbandalagi Evrópu (aðild að evrunni) eitt af skilyrðum ESB aðildar.  Það eru skilyrði sem aðildarríkin verða að uppfylla og er hverju aðildarríki er gefinn aðlögunartími.

Jóhann Elíasson, 22.2.2016 kl. 10:59

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það eru víst 17 þjóðir í þessu myntbandalagi ESB.  Þú skalt nú ekki vera of viss um að Bretar gangi ekki úr ESB (fljótt á litið sé ég ekki þessa miklu hagsmuni), kannanir sýna að það sé mjög mjótt á mununum.

Jóhann Elíasson, 22.2.2016 kl. 11:22

5 identicon

Hafa þá Bretar óbeint að segja sig frá ESB allt síðan árið 2000?

Hvað meinarðu með að ESB "skaði aðildaríkin frekar en hitt"?

Gaupi (IP-tala skráð) 22.2.2016 kl. 17:29

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

ESB, er orðið þannig að greiðslur flestra aðildarríkjanna til sambandsins, eru orðnar mun hærri en áætlaður hagur þeirra af aðild.  Þegar svo er orðið þá eru aðildarríkin farin að skaðast á aðildinni........

Jóhann Elíasson, 22.2.2016 kl. 19:06

7 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Nú segjir þú mér fréttir Jóhann, að skilyrði fyrir inngöngu í ESB sé að taka upp Evru. Bretar, danir og svíar hafa þá þvermóðskast við þetta. Þau ríki sem ég tel á fingrum, sem eru í Evru eru eftirfarandi:

Finnland(að ég held), Þýskaland, Belgía, Holland, Frakkland, Spánn, Portúgal, Ítalía, Grikkland og Lichterstein, veit að Danmörk er í EMR1, en ég sagði að sennilega væru aðrar þjóðir í farvatninu , en þessar 10 þjóðir hafa Evru, engar aðrar. Bretar halda pundinu fram í rauðan dauðann. En róaðu þig aðeins Jóhann, líttu á staðreyndir, svona er staðan:) 

Jónas Ómar Snorrason, 22.2.2016 kl. 22:15

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég er ekkert æstur og þarf því ekkert að róa mig niður þú verður að endurskoða þessa visku þína hvað sem þú segir er bara ekki rétt evruþjóðirnar eru 17, þú gleymir Eystrasaltsríkjunum, Svíþjóð og Póllandi og einhverjum fleirum.  Það er greinilega ekki ég sem þarf að róa mig Jónas Ómar. cool

Jóhann Elíasson, 22.2.2016 kl. 23:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband