HVERS VEGNA ÆTTI AÐ FLYTJA GLÆPAMENN TIL LANDSINS?????

Þó svo að hann hafi komið upplýsingum á framfæri, sem snertu heimsbyggðina, þá var upplýsinganna aflað með ólöglegum hætti og þjófnaður er alltaf þjófnaður.  Er einhver einn þjófnaður eitthvað betri en annar????


mbl.is Vill að Edward Snowden fái hæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnar Kristján Gestsson

Tilgangurinn, my dear Watson, tilgangurinn. 

Ragnar Kristján Gestsson, 24.2.2016 kl. 17:56

2 identicon

Ég hef svo sem séð svipaðan málflutning hjá þér.  Mig grunar að þér finnst trúnaðarbrot Snowdens vega þyngra en það sem ríkisstjórn Bandaríkjanna ber ábyrgð á.  Eða er ég að misskilja þig?

Hilmar (IP-tala skráð) 24.2.2016 kl. 18:20

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hilmar, eins og ég sagði í færslunni þá er þjófnaður alltaf þjófnaður.

Jóhann Elíasson, 24.2.2016 kl. 18:24

4 identicon

Það má vel vera að þjófnaður sé þjófnaður, en ef t.d. ég myndi verða vitni að stórfelldum glæpum gagnvart fólki á mínum vinnustað, myndi ég ekki hika við að segja viðkomandi yfirvöldum frá því.  Mér yrði ekki stætt á því að standa aðgerðalaus hjá og þegja þunnu hljóði og vera samsekur.  En, enn stendur spurning mín ósvöruð.

Hilmar (IP-tala skráð) 24.2.2016 kl. 19:09

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Er enginn munur á því í þínum huga, hvort þú SEGIR frá einhverju eða STELUR gögnum??????  Auðvitað gerðust Bandarísk stjórnvöld sek um vítaverða hluti en að mínu mati réttlætir það ekki þjófnað Snowdens.  Ég vona að þú lýtir á þetta sem fullnægjandi svar, því ég geri það og ekki verður um annað svar að ræða.

Jóhann Elíasson, 24.2.2016 kl. 20:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband