ALLT AÐ ÞVÍ AÐ VERA HUNDLEIÐINLEG KEPPNI

En þetta er staðreyndin með þær brautir, það sem framúrakstur er erfiður eða því sem næst ómögulegur.  Enda var varla hægt að segja að neitt spennandi hafi gerst í þessari keppni.  Það eina sem var eitthvað varið í var þegar Palmer komst framúr Hulkenberg á þjónustusvæðinu en varð svo að gjalda fyrir þetta þegar hann missti bílinn, eftir að fara of djúpt í beygju og fór út í dekkjakurlið utan við aksturslínua í næstu beygju, sem varð til þess að hann datt úr 10 sæti (síðasta stigasætinu) í það 13.  En þarna náði Hamilton sex stiga forystu á Rosberg í kapphlaupinu um heimsmeistaratitilinn en vonandi verður keppnin á Hockenheim, eftir viku, skemmtilegri en þessi.


mbl.is Hamilton kom fyrstur í mark
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Gíslason

Er ekki þetta sem þarf að breyta, sem er að gera framúrakstur auðveldur með því móti væri hugsanlegt að ekkert væri fyrirsjáanlegt.

Ómar Gíslason, 24.7.2016 kl. 19:39

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það eru eiginlega tvær brautir í keppninni, sem eru sérstaklega slæmar hvað framúrakstur varða, það eru brautin í Ungverjalandi og svo Mónakó-brautin.  Þessar tvær brautir eru sérstaklega slæmar.  Brautin í Bakú er frekar leiðinleg en svo er það bara persónulegt mat en ég hef alltaf haft ímugust á brautinni í Singapoor, ég veit ekki alveg af hverju það er eða réttara sagt ég geri mér ekki alveg grein fyrir ástæðunni.

Jóhann Elíasson, 24.7.2016 kl. 22:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband