ER HANN ÞÁ EKKI SEKUR UM SKJALAFALS?

Hann skrifar undir skjalið sem borgarstjóri, sem hann var ekki á þessum tíma, ef hann hefði haft vit á að skrifa undir skjalið fyrir hönd borgarstjóra og framvísað gildu umboði hefði ekki verið hægt að gera athugasemdir við gjörninginn.  En það fer ekkert á milli mála að þetta skjal hefur ekkert gildi og liggur beint við að farið verði í ógildingarmál vegna þessa axarskapts og þessi gjörningur er þar með úr sögunni.  En nú verða þingmenn að hafa hraðar hendur og TAKA SKIPULAGSVALDIÐ AF ÞEIM SVEITARFÉLÖGUM, SEM ERU MEÐ ALÞJÓÐAFLUGVÖLL INNAN SINNA VÉBANDA OG FÆRA TIL RÍKISINS, eins og Höskuldur Þórhallsson vildi gera.  HVAÐ ER ÞESS VALDANDI AÐ ALÞINGI ÍSLENDINGA GRÍPUR EKKI TIL AÐGERÐA Í MÁLINU?


mbl.is „Verðmiðinn er kominn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Gíslason

Þetta er skjalafals þar sem hann var ekki með löggilt umboð og auk þess var hann ekki borgarstjóri og hefði þurft að skrifa "fyrir hönd borgarstjóra".

Ómar Gíslason, 31.8.2016 kl. 17:40

2 Smámynd: Ómar Gíslason

Með þessu komast því allar mótbárur að gagnvart grandalausum þriðjamanni

Ómar Gíslason, 31.8.2016 kl. 18:07

3 Smámynd: Guðlaugur Guðmundsson

Stóra spurningin er sú, hvort Dagur litli fór á þessum tíma með skriflegt umboð úr hendi Jóns Gnarr, sem þá var borgarstjóri.  En kannski voru menn ekkert að hafa fyrir svoleiðis aukaatriðum á þessum uppgangstímum Samfylkingarinnar.

Guðlaugur Guðmundsson, 31.8.2016 kl. 22:41

4 Smámynd: Eggert Guðmundsson

Ég held að smáhlutir sem skipta öllu máli í augum flestra- jafnvel dómstóla - skipta engu máli í augum Samfylkingarmanna

Eggert Guðmundsson, 31.8.2016 kl. 23:11

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég þakka öllum fyrir innlitið, það er nokkuð ljóst að ég er ekki sá eini sem spáir í þetta. Að sjálfsögðu skipta svona hlutir höfuðmáli ef þetta fer fyrir dómstóla.

Jóhann Elíasson, 1.9.2016 kl. 08:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband