REYNDAR ER ÞETTA NÁKVÆMLEGA ÞAÐ SEM NEI-SINNAR HAFA ALLTAF HALDIÐ FRAM

En INNLIMUNARSINNAR hafa alltaf verið að bera á móti og vísvitandi verið að ljúga að þjóðinni að til væri eitthvað sem héti samningur.  Nú er þetta bara komið alveg á hreint, ÞAÐ ER BARA VERIÐ AÐ SEMJA UM ÞAÐ HVERSU HRATT UMSÓKNARRÍKIÐ AÐLAGIST LÖGUM OG REGLUM ESB OG ÞAÐ ERU ENGAR VARANLEGAR UNDANÞÁGUR VEITTAR


mbl.is Reglur ESB „óumsemjanlegar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þetta er bara staðfesting á því sem hefur legið fyrir allan tímann. Gott samt að fá þá staðfestingu.

Guðmundur Ásgeirsson, 1.11.2016 kl. 12:40

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já satt segir þú Guðmundur.  En heldur þú að INNLIMUNARSINNAR reyni ekki eitthvað að malda í móinn og tala enn og aftur um "viðunandi samning"????

Jóhann Elíasson, 1.11.2016 kl. 12:45

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Má vera, en hér er samningurinn og ekkert sem hindrar neinn að taka afstöðu til þess hvort hann sé "viðunandi" eða ekki: Samsteyptar útgáfur sáttmála um Evrópusambandið og sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins

Það sem viðræðu- og aðildarsinnar verða hins vegar að átta sig á er að stjórnarskráin bannar þennan samning.

Guðmundur Ásgeirsson, 1.11.2016 kl. 12:52

4 Smámynd: Ómar Gíslason

Reyndar stórfurðulegt að árið 2016 skulu einstaklingar halda því fram að 330.000 manna þjóð geti breytt 300 milljóna batteríi. Við verðum að taka um þeirra lög 100% 

Ómar Gíslason, 1.11.2016 kl. 13:24

5 identicon

En eigum við ekki bara að taka slaginn og ganga í ESB. Í fyrsta lagi vegna þess að það er búið að hirða af okkur kvótann. Það eru helmingi færri sjómenn starfandi í dag en þegar ég byrjaði á sjó árið 1976, plús það að ótal þjónustufyrirtæki hafa horfið svosem ótal frystihús allan hringinn í kringum landið vegna hlandvitlausrar stefnu í sjávarútvegsmálum. Svo er alltaf hægt að fara út aftur, eins og BREXIT sýnir. En þetta EES er mesta ruglið = að fara hálfa leið inn. Allt hálfkák hefur alltaf reynst öllum gagnslaust.

Svo er annað. Mesta ógnin sem steðjar að Íslandi núna er ekki EES, heldur sú staðreynd að Bjarni Ben er ótvíræður sigurvegari kosninganna. Sem þýðir það að langlíklegast er hann myndi næstu ríkisstjórn. Sem þýðir það að þá hefst ný einkavæðing á fullu og kannski verður hún svo mikil að við getum lokað sjoppunni í kjölfarið.

Meira að segja ég væri búinn að láta hann hafa umboðið ef ég hefði umboð til þess. Svo augljós voru kosningaúrslitin að mínu mati.

Steindór Sigurðsson (IP-tala skráð) 1.11.2016 kl. 14:04

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Steindór, að mínu mati var EES - samningurinn einhver stærstu mistök sem hafa verið gerð svo er náttúrulega Schengen.  Viltu virkilega bæta í og bæta ESB í mistakasafnið?   Það er ekkert einfalt við það að fara út ú ESB, menn telja að útganga Breta taki á bilinu 2-5 ár, en á þeim tíma yrðu skip frá ESB löndunum búin að þurrka upp fiskistofnana í lögsögunni svona sem lítið dæmi.

Jóhann Elíasson, 1.11.2016 kl. 14:19

7 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Steindór. Lastu ekki það sem ég skrifaði? Stjórnarskráin leyfir ekki aðild Íslands að Evrópusambandinu.

Þannig skiptir ekki máli þó þú viljir að Ísland gangi í ESB, því það er einfaldlega ekki heimilt.

Jóhann. Helstu mistökin varðandi EES er að íslensk stjórnvöld eru sífellt að brjóta þann samning.

Guðmundur Ásgeirsson, 1.11.2016 kl. 18:19

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þetta hefur alltaf legið fyrir. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.11.2016 kl. 18:27

9 identicon

Kannski Árni Páll og hinir föllnu Samfylkingarþingmenn fatti nú af hverju SF er öll.

Birgir Gudjonsson (IP-tala skráð) 1.11.2016 kl. 19:47

10 identicon

Nei Jóhann auðvitað vill ég ekki ganga alla leið í vitleysunni. En afturámóti virðist það vera eina leiðin til að losna útúr vitleysunni. Auðvitað áttum við aldrei að ganga í EES og ekki heldur í Sengen og aldrei, aldrei að færa örfáum kvótagreifum kvótann á silfurfati. Og svo ég segi það enn og aftur að þeir sem hafa keypt kvóta undanfarin ár. Hafa ekkert greitt fyrir kvótann nema með afskriftum. Við eigum bara eitt skref í að ganga alla leið í vitleysunni.

Og Guðmundur, auðvitað veit ég og búinn að vita í mörg ár að það þarf að breyta stjórnarskránni til að ganga í ESB. En úrslit síðustu kosninga benda til þess að einkavæðing sem aldrei fyrr verður efst á baugi. Og ef það verður, nú þá er þetta búið hvort sem er.

Steindór Sigurðsson (IP-tala skráð) 1.11.2016 kl. 20:00

11 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Steindór. Þú virðist ekki hafa skilið það sem ég skrifaði til hlítar.

"...búinn að vita í mörg ár að þarf að breyta stjórnarskránni til að ganga í ESB."

Slík breyting er einmitt ekki heimil, þar sem þingmenn eru svarnir drengskaparheiti við núverandi stjórnarskrá. Ef þeir myndu samþykkja lög sem kveða á um slíka breytingu væru þeir að rjúfa það drengskaparheit. Þetta kom skýrt fram af hálfu þingmanna úr hinum ýmsu flokkum (þar á meðal ESB-sinnuðum) í umræðum á síðasta þingi skömmu fyrir þinglok.

Guðmundur Ásgeirsson, 2.11.2016 kl. 09:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband