EKKI SPURNING EF "VINSTRI HJÖRÐIN" NÆR SAMAN

En til allrar hamingju eru ekki miklar líkur á því í augnablikinu, en auðvitað sést ekki fyrir endann á þessum sirkus, sem er í gangi í "stjórnarmyndunarviðræðum".  En það hljóta allir, sem eru með meira en hálf fimm í hausnum, að sjá að í því "kraðaki", sem kom út úr kosningunum nú í haust ER ENGINN LÍFVÆNLEGUR MEIRIHLUTI OG ÞVÍ ER EINI RAUNHÆFI MÖGULEIKINN AÐ KJÓSA AFTUR Í VOR OG VONAST TIL ÞESS Í LEIÐINNI AÐ KJÓSENDUR VERÐI BÚNIR AÐ NÁ PÓLITÍSKUM ÁTTUM.....


mbl.is Gæti stefnt í annað hrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar

já einmitt, var það vinstri stjórn sem skellti okkur út í síðasta hrun?  nei, það var vinstri stjórn sem kom okkur upp úr kreppunni!

Óskar, 9.12.2016 kl. 11:34

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

 Þið vinstri menn talið aldrei um þær gífurlegu skattahækkanir og niðurskurðinn, sem "Ríkisstjórn Fólksins" kallaði yfir okkur og stofnanir ríkisins eru enn að glíma við.  Ég byði ekki í ástandið ef "Vinstri Hjörðin" hefði verið áfram við völd og ef ekki hefði verið gripið inn í þegar átti að láta okkur kokgleypa Ices(L)ave, ekki einu sinni heldur tvisvar, í skiptum fyrir ESB INNLIMUN.  Hefði ekki komið til almennileg stjórn 2013, væri ástandið mun verra í Heilbrigðismálum, menntamálum, samgöngumálum og mörgum fleiri málaflokkum en það er í dag.

Jóhann Elíasson, 9.12.2016 kl. 12:28

3 Smámynd: Óskar

nú höfum við upplífað mesta góðæri Íslandssögunnar og ástandið er nokkurnveginn svona:  Heilbrigðiskerfið hrunið, löggæslan í molum, menntakerfið orðið eitt hið lélegasta í Evrópu og samgöngumál í frosti.  Þetta gæti ekkert verið verra þó simpansar væru í stjórn.  Það er ákveðið afrek að takast að rústa innviðum samfélagsins í dæmalausu góðæri. Þetta tókst hægri stjórninni.

Óskar, 9.12.2016 kl. 12:35

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

 Þú vilt ekki tala um að það var "Ríkisstjórn Fólksins" sem rústaði innviðum þjóðfélagsins með niðurskurði.  En þið vinstri menn eigið það sameiginlegt að sjá ekki nema með vinstra auganu og lifa í algjörri afneitun "Vinstri Hjörðin" komst að stjórn landsins síðast í kjölfar óróleika í þjóðfélaginu og ætlar að nýta óróa til að  komast að aftur,þetta ætti að segja fólki ýmislegt...

Jóhann Elíasson, 9.12.2016 kl. 13:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband