ENDURSPEGLAR ÞÁ ALÞINGI EKKI VILJA ÞJÓÐARINNAR??????

Þessi eilífðarþráhyggja einhverra einstaklinga með að koma áfengi í matvöruverslanir, er að verða langdregin og þreytandi.  Það virðast hver rökin á fætur öðrum "hrynja" og verða að engu hjá flutningsmönnum þessa frumvarps og er svo komið að EINU rökin, sem þeir koma með núna eru að RÍKIÐ EIGI EKKI AÐ STANDA Í SÖLU Á ÁFENGI ÞVÍ ÞAÐ "HAMLI SAMKEPPNI".  Ef þetta er það eina sem eftir stendur í þessari umræðu ætti ekki að vera mikið mál að afnema einkarekstur ríkisins á þessu sviði og bjóða núverandi rekstur ÓBREYTTAN út.  En er þingheimi treystandi til þess að afgreiða þetta mál þannig án þess að KLÚÐRA því?????  Í það minnsta held ég að flestir séu orðnir hundleiðir á þessu máli og vilji bara að það sé klárað á skynsamlegan hátt og ljúka því þar með.


mbl.is Vilja ekki vín í verslanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjörtur Herbertsson

Þetta mál virðist vera innleitt af ungum sjálfstæðismönnum, ef mig misminnir ekki þá var það Sigurður Kári sem upphóf þessa vitleysu þegar hann settist á þing. Nú svo tók annar sjálfstæðismaður við Vilhjálmur Árnason þegar hann drattaðist inn á þing, og nú sá þriði sem þreifar þetta mál. Vona að þetta falli um sjálft sig.

Hjörtur Herbertsson, 24.2.2017 kl. 13:59

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Þetta er farið að minna á ESB-þráhyggjuna. Fyrsti flutningsmaður ætti að sjá sóma sinn í því að draga frumvarpið til baka og viðurkenna að þjóðin vill ekki sjá þess vitleysu.

Tómas Ibsen Halldórsson, 24.2.2017 kl. 14:06

3 Smámynd: Hrossabrestur

Væri ekki upplagt að setja þau skilyrði að fólk yrði að hafa einhverskonar afrekaskrá úr atvinnulífinu til að vera þingtækt svo að svona ónytjunga hópur eins og nú ríður þarna húsum sé einhvers staðar annars staðar en á Alþingi til ills og bölvunar? 

Hrossabrestur, 24.2.2017 kl. 21:26

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Góð tillaga "Hrossabrestur", í það minnsta verður að gera einhverjar kröfur á þá sem eiga að hafa vit fyrir okkur. undecided

Jóhann Elíasson, 24.2.2017 kl. 22:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband