NÚ ER NÓG KOMIÐ AF "RUGLINU" Í SEÐLABANKASTJÓRA OG PENINGASTEFNUNEFND

Þessi maður stendur bara keikur, með "pörupiltaglott" á vör og segist verða að HÆKKA stýrivextina, en af góðmennsku sinni, ætli hann að bíða með það til NÆSTA vaxtaákvörðunardags.  Svo þegar hann er spurður að því hvað valdi því að HÆKKA þurfi vextina, er eina svarið; "AÐ ÞAÐ SÉ SPENNA Í HAGKERFINU" en fréttamönnum dettur ekki í hug að fá nánari útskýringu á þessari "SPENNU Í HAGKERFINU".  Í það minnsta er engin þörf á að HÆKKA vextina til þess að "laða" fjármagn inn í landið, því það gerir það nú þegar, hér á landi fá fjárfestar það góða ávöxtun vegna hárra vaxta að peningarnir flæða inn í landið og verður enn meira flæði af þeim ef og þegar vextir verða hækkaðir enn meira.  Það er kominn tími á þennan mann sem stýrir Seðlabankanum í það minnsta þarf að koma vitinu fyrir hann og það sem allra fyrst.  Besti maðurinn til að tala við manninn er Óli Björn Kárason, formaður Efnahags- og Viðskiptanefndar.  Ef Óli Björn Kárason getur ekki komið vitinu fyrir hann get ég ekki séð nokkur ráð önnur en að maðurinn verði að taka pokann sinn og verð ég "að segja að farið hefur fé betra"......... 


mbl.is Reikna með rólegri styrkingu krónunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 Nú er ég sammala hverju orði Jóhann seðlabankastjóri er einhver omerkilegasti lúsablesi sem Island hefur alið.Svo segir skrípið að ekki sé hætta a öðru hruni ég ætla bara að snúa öllu við sem hann segir svoleiðis er ég nær sannleikanum

Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 16.3.2017 kl. 10:25

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég er ekki viss um að annað "Hrun" sé á leiðinni en það er ekki hægt að þræta fyrir að við erum við "toppinn" á hagsveiflu, hversu lengi við verðum við eða á "toppnum" er ekki gott að segja en við komum til með að sigla inn í "stöðnun" og síðan í "kreppuástand".

Jóhann Elíasson, 16.3.2017 kl. 10:59

3 identicon

hrunið 2008 byrjaði i bandaríkjunum út af of miklum skuldum held ég,nú hafa skuldir BNA tvöfaldast síðan 2008 vextir eru bunir að vera i 0.ég hugsa til þess með hryllingi hvað skeður þegar vextir fara að hækka aftur spáðu i það þeir hafa ekki getað borgað af skuldunum sinum með vexti i 0 og nú eru þeir byrjaðir að hækka aftur

Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 16.3.2017 kl. 22:18

4 identicon

Þetta er nú bara fórnarkostnaðurinn að hafa okkar eigin gjaldmiðil, en það má víst ekki tala niður krónuna hún BJARGAÐI okkur jú í hruninu.

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 17.3.2017 kl. 08:19

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Helgi þú þarft að fara að færa einhver almennileg rök fyrir þessum upphrópunum þínum....

Jóhann Elíasson, 17.3.2017 kl. 14:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband