Föstudagsgrín

 Jón og Jóna eru að halda upp á 50 ára brúðkaupsafmæli sitt. Jón segir við Jónu. "Hefurðu nokkurn tíma haldið fram hjá mér?" Jóna svarar: "Jón! Hvers vegna ertu að spyrja svona spurningar núna"? "Jú, Jóna, ég verð að vita það," svarar Jón. Jóna segir: "Allt í lagi, ég hef haldið þrisvar fram hjá þér.""Þrisvar, hvenær var það?" spyr Jón.

Jóna segir: "Manstu Jón þegar þú varðst 25 ára og vildir stofna fyrirtækið og bankastjórinn neitaði þér um lán? Svo kom bankastjórinn sjálfur einn daginn með lánspappírana svo þú gætir skrifað undir." Jón svarar: "Ó, Jóna, þú gerðir þetta fyrir mig, ég virði þig bara meira en áður. Hvenær var svo annað skiptið?"

Jóna segir: "Manstu þegar þú fékkst hjartaáfallið og enginn læknir vildi skera þig vegna þess að aðgerðin var svo hættuleg? Svo kom allt í einu dr. Bjarni yfirlæknir og framkvæmdi aðgerðina sjálfur og þú náðir þér alveg."

"Ég trúi þessu ekki," sagði Jón, "þú gerðir þetta til að bjarga lífi mínu. Ég gæti ekki átt betri konu. Þú hlýtur að elska mig mjög mikið fyrst þú gerir allt þetta fyrir mig. Hvenær var svo þriðja og síðasta skiptið?"

"Jón, þú manst að fyrir nokkrum árum langaði þig til að verða formaður í golfklúbbnum og þig vantaði 18 atkvæði til að ná kjöri..?"

 

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Kostulegur -- góður þessi !

PS. Er þetta upphitun hjá þér fyrir helgina?! foot-in-mouthsurprisedlaughing

Jón Valur Jensson, 2.6.2017 kl. 03:57

2 Smámynd: Ómar Gíslason

Góður :) Greinilega upphitun fyrir helgina

Ómar Gíslason, 2.6.2017 kl. 15:05

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta er eins og í tölfræðinni, allt spurning um framsetningu og "allt satt og rétt".  Í þessu tilfelli títur mun betur út að "flokka" niður og segja þrisvar sinnum en að "búta" niður og segja 20 sinnum. cool wink laughing 

Jóhann Elíasson, 2.6.2017 kl. 17:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband