ALLT SEM BENDIR TIL AÐ NÚ SÉ "UPPGANGSTÍMINN" Á ENDA.......

Núna síðustu vikurnar og mánuði hafa verið að koma merki um að nú sé "uppgangstímanum" að ljúka og héðan af liggi leiðin í efnahagslífinu niður á við.  En hvaða merki eru þetta?  Ekki verða öll merkin tekin heldur bara örfá og til dæmis; Hótel Bjarkarlundur er til sölu, 30% færri ferðamenn til Vestfjarða en í fyrra, frestað hótelbyggingu á Seyðisfirði, hótelbyggingu á Akureyri slegið á frest og gengi krónunnar er þar afsökun, hótel á Leirárbakka til sölu, enn ein breyting á hóteli á "Hörpureitnum" og fleira.  Það er hætt við að fyrirtæki og almenningur, sem hafa skuldsett sig uppfyrir eyru verði í slæmum málum.  Og enn eitt merkið er að þegar KRÓNAN fellur gagnvart evru, þá er eitthvað stórt í vændum......


mbl.is Hefur veikst um rúm 4% gagnvart evru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Hverjum verður svo kennt um og hverjir verða látnir borga fyrir sukkið???? Munu stjórnvöld vilja koma til bjargar þeim sem fóru of geyst með framlögum okkar skattgreiðenda???? mér er spurn!!!

Kannski mun náttúra okkar fá tíma til að jafna sig eftir ágang ferðamanna. Ef til vill er það ekki alslæmt ef ferðamönnum fækki. Svo má nýta tómar hótelbyggingar til að hýsa fólk sem ekki hefur efni á að vera á leigumarkaðinum fyrir hóflegt gjald.

Tómas Ibsen Halldórsson, 22.6.2017 kl. 15:22

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég skal lofa þér því að "Vinstri Hjörðin" verður með fast heimilisfang niður á Austurvelli, berjandi í potta, pönnur og ruslatunnur og vælandi og öskrandi yfir hægri öflunum í landinu og ef við verðum svo ólánsöm að "Vinstri öflin" komist í kjölfarið að verða skattar og gjöld hækkuð langt upp fyrir "skorstein" og þeim sem hafa offjárfest verður bjargað á kostnað skattgreiðenda ein og gerðist í HRUNINU...........

Jóhann Elíasson, 22.6.2017 kl. 15:43

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Það var fyrirséð að ferðamönnum myndi fækka, bara spurning hvenær. En hótelbyggingarmenn hefðu getað baktryggt sig með því að byggja stúdíóíbúðir í stað venjulegra hótelherbergja.

Kolbrún Hilmars, 22.6.2017 kl. 15:46

4 identicon

Þegar vínglas á hóteli kostar 15 - 16 € þá getur bara eitt skeð.
Mín spá er að eftir 5 ár verður helmingur hótela á Ísland gjaldþrota.

valdimar jóhannssonvv (IP-tala skráð) 22.6.2017 kl. 16:37

5 identicon

Að sjálfsögðu eiga þetta að vera evrur.

valdimar jóhannsson (IP-tala skráð) 22.6.2017 kl. 16:42

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Okrið hefur verið svo gengdarlaust í ferðamannageiranum að ég græt það sko ekkert þó verði skellur þar og ég er handviss um það að það verður meira en helmingurinn af hótelunum gjaldþrota.  Og Valdimar, þú ættir að prófa að kíkja hérna upp á Ásbrú, þar er annað hvort hótel eða gistiheimili í öðru hverju húsi og ekki er eigið fé hátt.

Jóhann Elíasson, 22.6.2017 kl. 17:34

7 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Ekki græt ég það! í marga áratugi hefur það gengið svona á íslandi,einhver     fer af stað með rekstur sem gefur af sér og runan á eftir. þetta er tjúllað.

Helga Kristjánsdóttir, 22.6.2017 kl. 22:57

8 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Þessi gengishækkun krónunnar er skipulögð.

Ef bankinn lánar ekki í hótel, þá eignast bankinn ekkert.  Bankinn skrifar aðeins töluna.

Ef bankinn lánar í hótel þá eignast bankinn hótel.  Bankinn skrifar aðeins töluna.

Við vitum að bankinn, gerir ekkert nema að skrifa töluna.

000

Ef eigendur hótelanna geta rekið hótelin með ágóða, þá greiða þeir niður skuldina og eignast hótelin.

Þá fá bankarnir lánið það er töluna sem þeir skrifuðu til baka, og sú tala er ekkert.

000

Ef fjármálakerfið hækkar krónuna í verði miðað við gjaldeyri, þá fá öll útflutningsfyrirtæki, og ferðaþjónustan færri krónur fyrir gjaldeyririnn, og geta ekki greitt niður lánin.

000

Ef bankakerfið getur komið í veg fyrir að fyrirtækin greiði lánin, þá á bankinn eignirnar.

000

Venjulegt næsta skref fjármálafyrirtækjanna er að segja eins og 2008, að bankinn sé tómur.

Banki er alltaf tómur.

000

Næst segjast  fjármálafyrirtækin ekki getað lánað úr tómum banka, eins og sagt var 2008.

Þegar bankar hætta að lána, það er að skrifa peningabókhaldið, þá verður fljótt þurrð á peningabókhaldi, peningum.

000

Þá stöðvast fyrirtækin, og fólkið missir vinnuna.

Þá reyna allir að selja, en bankinn segist engum lána til að kaupa, og þá stöðvast viðskipti með fasteignir.

000

Þá reyna aðilar að selja á 80%, svo á 50%, til að borga skuldir.

Þá segir bankinn, þú er að reyna að  selja á 50% verði, og þá er þín eign farin.

000

Ég bankinn, tek allar eignirnar til mín, helst á uppboðum, til dæmir á 2% verði.

Þá skuldar þú eignirnar áfram, þó að ég hafi náð eignunum.

000

Hér hefur bankinn náð öllum eignunum til sín.

Nú lætur bankinn endurmeta eignirnar sínar miðað við byggingakostnað og þá tvöfaldast eignirnar í verði.

000

Síðan selur bankinn eignirnar á tvöföldu eða þreföldu verði.

Ég er búin að fara yfir þetta oft áður á bloggunum mínum.

000

http://jonasg-egi.blog.is/

http://jonasg-eg.blog.is/

Egilsstaðir, 23.06.2017  Jónas Gunnlau

Jónas Gunnlaugsson, 23.6.2017 kl. 18:01

9 identicon

Því miður er þetta akkúrat eins og Jónas Gunnlaugsson lýsir því öll hrun eru vel skipulögð 

Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 24.6.2017 kl. 04:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband