NÚ VILL DAGUR ÞRENGJA ENN MEIRA AÐ FLUGVELLINUM....

Það "pirrar" hann þessi þvermóðska í Jóni Gunnarssyni.   Nú á bara að láta hart mæta hörðu og taka skipulagsvaldið af Reykjavík, vegna flugvallarins með lögum.  Þetta hefði átt að gera strax þegar Höskuldur Þór Þórhallsson kom fram með þá tillögu að taka skipulagsvaldið af þeim sveitarfélögum sem höfð alþjóðaflugvöll innan sinna vébanda.  En einhverra hluta vegna var það frumvarp aldrei lagt fram á Alþingi.  Ef það hefði verið gert hefði það sparað mikinn tíma, fé og skotgrafahernað.  Hvað skyldi verða gert núna???


mbl.is Aukning við flugvöllinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 Já, satt segirðu. Ég botnaði líka ekkert í Höskuldi að leggja ekki þetta frumvarp fram á sinni tíð, því að það átti alveg fyllilega rétt á sér. Hissa yrði ég líka, ef Sigmundur Davíð hefði farið að skipta sér af því og skipa honum, að gera það ekki, því að ég hélt að Sigmundur væri flugvallarvinur eins og aðrir Framsóknarmenn. Sem skipulagsfræðingur hefði Sigmundur líka getað séð, að þessi íbúðarhverfi Valsmanna og flugvöllur fara engan veginn saman. Ég skil líka ekkert í þessu borgarstjórnarliði að vera að auglýsa friðland fugla í Vatnsmýrinni á sama tíma og á að fylla hana af alls konar byggingum. Þetta fer engan veginn saman heldur. Friðland fugla getur verið í Vatnsmýrinni á meðan flugvöllurinn er þar. Annað gengur ekki. Þessir Valsmenn mega líka skammast sín, eins og þeir hafa hagað sér til þessa, því að þeir eru sr. Friðrik, stofnanda Vals, til háborinnar skammar, enda hefði sr. Friðrik áreiðanlega lesið dágóðan pistil og baunað á þeim ritningargreinar úr Biblíunni um ágirndina m.a., ef hann hefði verið á dögum núna. Hér finnst mér það sannast hið fornkveðna, að margur verður af aurum api. Það er ekki hægt að segja annað. Þetta er til háborinnar skammar fyrir alla aðila. Vonandi verður hægt að stöðva þessa vitleysu alla, þegar Sjálfstæðisflokkurinn nær borginni, sem ég er viss um, að gerist næsta vor. Getur ekki annað verið. Þetta gengur ekki lengur.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 23.6.2017 kl. 11:40

2 Smámynd: Hrossabrestur

Er þessi höfuðborgarnefna ekki við það að kyrkjast efnahagslega, það er allvega talsvert skrifa um það nú um stundir að skuldafenið sé þvílíkt eftir vinstra liðið að reskturinn sé orðinn gersamlega ósjálfbær.

Hrossabrestur, 23.6.2017 kl. 18:27

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Staðan er víst verri en hún var hjá Reykjanesbæ, þegar verst var.  Munurinn er sá að þeir hafa getað "falið" hversu alvarleg staðan er og því er ráðuneytið ekki komið yfir þá......

Jóhann Elíasson, 24.6.2017 kl. 08:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband